Samningafundi Eflingar og borgarinnar lokið án samkomulags
Fundi samninganefnda Eflingar og Reykjavíkur lauk hjá sáttasemjara fyrir skemmstu án samkomulags.
Fundi samninganefnda Eflingar og Reykjavíkur lauk hjá sáttasemjara fyrir skemmstu án samkomulags.
Félag leikskólakennara styður heilshugar tillögur stýrihóps Reykjavíkurborgar um umbætur og skipulag leikskólastarfs í Reykjavík. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn félagsins sendi frá sér í dag.
Hópur fimmtán kvenna skorar á borgarráð að hafna breytingum á opnunartíma leikskóla sem nýverið voru samþykktar í skóla- og frístundaráði. Breytingin felur í sér að almennur opnunartími leikskóla borgarinnar breytist úr 7:30-17:00 í 7:30-16:30. Akureyri, Reykjanesbær og Kópavogur eru meðal sveitarfélaga sem hafa þegar gert breytinguna.
Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti á fundi sínum í dag að stytta opnunartíma leikskóla borgarinnar frá og með 1. apríl næstkomandi. Almennur opnunartími verður þannig frá klukkan 07:30 til 16:30 í stað 17:00, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Opnunartími leikskólanna styttist þannig um hálftíma.
Foreldrar ungbarna ættu að forðast það að eiga við dýnur í barnarúmum. Aðeins ætti að nota dýnuna sem framleidd er fyrir rúmið og það á „alls ekki að bæta við annarri dýnu ofan á rúmbotninn eða setja nýja dýnu í rúmið,“ að sögn Neytendstofu. Það getur aukið köfnunarhættu til muna.
Meghan Markle, eiginkona Harrys prins, hefur samið við Disney um að lesa inn á teiknimynd sem er í framleiðslu. Í staðinn mun Disney greiða þóknun í söfnun fyrir villta fíla sem ber yfirskriftina Fílar án landamæra.
Leikskólastjórar á Austurlandi hafa áhyggjur af manneklu og hve illa gengur að ráð íslenskumælandi starfsfólk. Þeir telja að ástandið versni til muna um áramót þegar leikskólakennarar fá kennsluréttindi í grunnskólum. Þar bjóðist betri kjör með yfirvinnu og meiri tími til undirbúnings.
Á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar í vikunni var lagt fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla borgarinnar. Alls eru 259 börn á biðlista. Þá eru Þar af 48 börn eldri en 18 mánaða og eldri á biðlista. Meirihlutinn lagði fram bókum á fundinum þar sem þau sögðu góða stöðu á innritun barna í leikskóla borgarinnar fyrir haustið. Eyþór Arnalds, oddiviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir langt vera milli efnda og loforða hjá meirihlutanum í leikskólamálum.
Ósk um að fá brjóstamjólk að gjöf vegna veiks barns í Reykjavík hefur komið inn á nokkra mömmuhópa á Facebook upp á síðkastið. Landspítalinn segir hins vegar ekkert vitað um þetta barn og að þessi mjólkursöfnun sé ekki á þeirra vegum. Á sama tíma hefur brjóstamjólk orðið vinsæll drykkur vaxtarræktarfólks og lyftingamanna.
Smáforrit sem hugsað er sem vettvangur fyrir börn á aldrinum 13 – 17 ára til að eignast vini líkist helst stefnumótaforritum eins og Tinder. Móðir sem skráði sig inn sem 14 ára stúlka fékk skilaboð þar sem óskað var eftir myndum af henni fáklæddri.