Óþarfi að beita hörku í bólusetningum barna
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki tímabært að grípa til aðgerða eins og að skylda foreldra til að láta bólusetja börn sín.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki tímabært að grípa til aðgerða eins og að skylda foreldra til að láta bólusetja börn sín.
Fyrr á árinu sendu um 50 núverandi og verðandi ljósmæður frá sér áskorun til yfirvalda og óskuðu eftir að greitt yrði fyrir starfsnám í ljósmóðurfræðum. Heildarsamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði telja alla eiga að fá greitt fyrir vinnu.
Tvívegis þurfti að óska eftir undanþágu frá yfirvinnubanni ljósmæðra á Landspítalanum í gær. Boðað hefur verið til nýs fundar í deilunni í dag og vonast ljósmæður eftir því að nýtt tilboð verði á borðinu. Níu börn höfðu fæðst á Landspítalanum í gær þegar Fréttablaðið fór í prentun.
„Ég heiti Ævar Þór og ég stend með ljósmæðrum,“ sagði Ævar Þór Benediktsson leikari, rithöfundur og verðandi faðir, á samstöðu- og mótmælafundinum fyrir utan Borgartún 21 í dag.
Formaður samninganefndar ljósmæðra segir félagsmenn fara fram á launaleiðréttingu en ekki launahækkanir umfram aðrar stéttir. Að óbreyttu mun yfirvinnubann ljósmæðra hefjast þann 16. júlí.
Andri Freyr Sveinsson og Guðrún Arndís Aradóttir eignuðust sitt fyrsta barn í lok maí síðastliðnum. Sonur þeirra, sem var hætt kominn við fæðingu, var fluttur með sjúkraflugi frá Akureyri til Reykjavíkur. Guðrún var sjálf afar illa á sig komin eftir fæðinguna en henni var flogið til höfuðborgarinnar síðar sama dag og lögð inn á sængurlegudeild Landspítalans.
Að minnsta kosti tvö hundruð leikskólakennara vantar til starfa í Reykjavík í haust að sögn leikskólastjóra. Leikskólastjórnendur undrast að nýr borgarstjórnarmeirihluti ætli að fjölga leikskólaplássum á sama tíma og illa gengur að manna lausar stöður.
Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var minni en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar segir að frjósemi í fyrra hafi verið 1,71. Þá hélt meðalaldur frumbyrja áfram að hækka og var 27,8 ár. Ef horft er til Evrópu var algengast að barn fæðist utan hjónabands á Íslandi.
Hagkaup hefur innkallað Hvolpasveitarbúning þar sem hluti búningsins er úr mjög eldfimu efni og fylgihlutur uppfyllir ekki öryggisstaðla. Er búningurinn því ekki í samræmi við þær kröfur sem settar eru vörum sem þessum.
Kópavogsbær hyggst grípa til víðtækra aðgerða til að styrkja umgjörð dagforeldra í bænum. Tillögur um aðgerðir til að bregðast við skorti á daggæsluúrræðum yngstu barna voru samþykktar einróma á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn þriðjudag.