Stytta opnunartíma leikskóla í Reykjavík

Stytta opnunartíma leikskóla í Reykjavík

Stytta opnunartíma leikskóla í Reykjavík

 Jafnframt er tiltekið í breyttum reglum um leikskólaþjónustu að börn geti að hámarki dvalið í leikskólanum í níu klukkustundir á dag.

Í tilkynningu borgarinnar segir að fyrirhuguð breyting byggi á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs en í honum sitja m.a. kjörnir fulltrúar og fulltrúar leikskólastjóra og leikskólakennara.

„Á undanförnum árum hefur dvalartími barna stöðugt lengst samhliða fækkun á fagfólki, sem ekki síst má rekja til minni aðsóknar í leikskólakennaranám undanfarinn áratug. Stýrihópurinn telur að stytting opnunartíma muni draga úr álagi á börn, stjórnendur og aðra starfsmenn og styrkja faglegt starf þar sem skipulag daglegs starf og mönnun leikskólans verði einfaldari,“ segir í tilkynningunni.

Gefinn verður aðlögunartími að breytingunum sem munu taka gildi 1. apríl 2020. Foreldrum og forsjáraðilum með gildandi dvalarsamninga til klukkan 16:45 eða 17:00 er heimilt að sækja um lengri aðlögunarfrest eða til 1. ágúst 2020 vegna sérstakra aðstæðna.

Gert er ráð fyrir að þessi breyting á opnunartíma leikskólanna taki gildi eftir samþykkt borgarráðs.

Foreldrar nýti ekki lengri vistunartíma

Í tilkynningu er jafnframt vísað í áfangaskýrslu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs í Reykjavík sem kynnt var í skóla- og frístundaráði í dag.

„Í henni kemur m.a. fram að rúmlegur helmingur þeirra foreldra sem kaupa vistunartíma frá 16:30 – 17.00 nýta hann í raun ekki. Þá má geta þess að önnur stór sveitarfélög hafa þegar breytt opnunartíma leikskóla á þennan veg, t.d. Akureyri, Reykjanesbær og Kópavogur,“ segir í tilkynningu.

„Stýrihópurinn leggur jafnframt til að laus rými á leikskólum borgarinnar verði boðin foreldrum til umsóknar en um er að ræða rými á leikskólum þar sem búið er að tæma alla biðlista. Undanfarna mánuði hafa biðlistar tæmst í nokkrum fjölda leikskóla samhliða inntöku yngri barna og er nú fyrirhugað að fara í kynningarátak til foreldra um laus pláss og opna fyrir innritun yngri barna en nú er þar sem aðstæður leyfa. Á síðasta ári var opnað fyrir innritun 15-18 mánaða barna og tókst að bjóða meirihluta barna á þeim aldri leikskólapláss.“, samkvæmt visir.

 {loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri