Segir langt milli efnda og loforða

Segir langt milli efnda og loforða

Á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar í vikunni var lagt fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla borgarinnar. Alls eru 259 börn á biðlista. Þá eru Þar af 48 börn eldri en 18 mánaða og eldri á biðlista. Meirihlutinn lagði fram bókum á fundinum þar sem þau sögðu góða stöðu á innritun barna í leikskóla borgarinnar fyrir haustið. Eyþór Arnalds, oddiviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir langt vera milli efnda og loforða hjá meirihlutanum í leikskólamálum.

Auglýsa eftir mjólk handa huldubarni

Auglýsa eftir mjólk handa huldubarni

Ósk um að fá brjóstamjólk að gjöf vegna veiks barns í Reykjavík hefur komið inn á nokkra mömmuhópa á Facebook upp á síðkastið. Landspítalinn segir hins vegar ekkert vitað um þetta barn og að þessi mjólkursöfnun sé ekki á þeirra vegum. Á sama tíma hefur brjóstamjólk orðið vinsæll drykkur vaxtarræktarfólks og lyftingamanna.

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 600 þúsund krónur

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 600 þúsund krónur

Greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi munu hækka um 80 þúsund krónur á mánuði um áramótin. Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur undirritað reglugerð þess efnis en greiðslurnar hækka úr 520 þúsund krónum í 600 þúsund krónur á mánuði.