Leikskólar borgarinnar verða opnir frá hálf átta til hálf fimm
Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hefur samþykkt að opnunartími leikskóla borgarinnar verði frá 7:30 til 16:30, frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hefur samþykkt að opnunartími leikskóla borgarinnar verði frá 7:30 til 16:30, frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur fullvissað móður tólf ára drengs með þroskahömlun, sem hafði verið synjað um skólavist, að hann fái pláss í Brúarskóla. Móðir hans er viss um að málinu hefði ekki verið reddað á sunnudegi nema vegna þess að fjallað var um það í fjölmiðlum.
Barnshafandi konur á Akureyri sem vilja fara í 12 vikna fósturskimun á sumarleyfistíma þurfa að fara til Reykjavíkur. Forstöðuljósmóðir á Akureyri segir að skimunin sé ekki nauðsynleg og algjörlega val foreldranna.
Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á öðrum ársfjórðungi 2021, frá byrjun apríl til júníloka. Aukninguna má meðal annars rekja til fjölda fæðinga. Á tímabilinu fæddust 1.270 börn en fæðingar á öðrum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá árinu 2010. Á sama tíma létust 570 einstaklingar.
Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir að það stefni í neyðarástand í fæðingarhjálp en aldrei hafi vantað jafn margar ljósmæður til starfa og nú. Á sama tíma er búist við allt að 30 prósenta fjölgun á fæðingum. Heilbrigðisráðherra hefur verið gerð grein fyrir stöðu mála.
Mikið álag hefur verið á fæðingardeild Landspítalans síðustu vikur en gert er ráð fyrir metfjölda í fæðingum í sumar. Vegna plássleysis hafa konur verið beðnar um að fæða á Akranesi að sögn yfirlæknis.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu þingflokksins sem lögð var fram á Alþingi í gær um að tannréttingar yrðu gerðar gjaldfrjálsar fyrir börn. Tannlækningar barna voru gerðar gjaldfrjálsar árið 2018.
Það stefnir í metár í fæðingum á Íslandi. Gert er ráð fyrir að 5000 börn fæðist í ár, sem eru 500 fleiri en í fyrra.
Kvikan, Karlynja, Vetur, Emill og Róm eru meðal nafna sem mannanafnanefnd hefur lagt blessun sína yfir á síðustu dögum. Öll sem eiginnöfn nema nafnið Kvikan, sem er samþykkt sem millinafn.
Leikskólinn Laugasól mun geta tekið á móti fimmtíu börnum til viðbótar eftir að endurbætur verða gerðar á núverandi kjallara leikskólans, en borgarráð hefur samþykkt að heimila formlegan undirbúning að stækkun og endurbótum á leikskólanum.