Sex jólabörn fæddust á Landspítalanum
Sex jólabörn fæddust á aðfangadag í ár í miðju Covid-fári og fimm á jóladag.
Sex jólabörn fæddust á aðfangadag í ár í miðju Covid-fári og fimm á jóladag.
Aron var vinsælast drengjanafna á síðasta ári og Freyja og Alexandra vinsælustu stúlknanöfnin. Þetta segir í nýrri tilkynningu frá Þjóðskrá.
Töluverður munur var á vinsælasta eiginnafni nýfæddra drengja og því næstvinsælasta. Alls fengu 48 drengir nafnið Aron í fyrra en 37 voru nefndir Alexander.
Hjón í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur höfðað mál á hendur tveimur fyrirtækjum sem aðstoðuðu þau við að eignast barn en þegar konan ól barnið kom í ljós að rangur fósturvísir hafði verið settur upp.
Fjöldi aðgerða sem tannlæknar gera á tunguhöftum barna hefur sextánfaldast frá 2016. Ríkið þarf að borga nærri tvöfalt meira fyrir aðgerðina hjá tannlækni en sérgreinalækni. Undirskriftasöfnun er í gangi meðal foreldra vegna skoðunar Embættis landlæknis á tunguhaftaaðgerðum.
Fjórir af hverjum fimm nemendum í 6., 8. og 10. bekk uppfylla ekki viðmið um ráðlagða daglega hreyfingu. Þetta sýnir ný rannsókn. Strákar hreyfa sig meira en stelpur og skólaíþróttir skipta sköpum fyrir börn sem ekki eru í skipulagðri hreyfingu.
Sögulega séð hefur frjósemi á Íslandi verið meiri en í nágrannalöndunum en nú er svo komið að hún er næstum því sú sama á Íslandi og í Danmörku og Svíþjóð, eða í kringum 1,7 börn á hverja konu.
Viðræður Sjúkratrygginga Íslands við sálfræðinga um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu hófust ekki fyrr en í lok apríl, tæpu ári eftir að lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi. Formaður Sálfræðingafélagsins telur að hundrað milljóna króna framlag ríkisins lýsi áhugaleysi stjórnvalda á þessu verkefni.
Félag talmeinafræðinga hótar að segja sig frá samningum við Sjúkratryggingar Íslands og skorar á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að fella út starfsreynsluákvæði þeirra í rammasamningi.
Um nokkuð skeið hefur staðið til að setja upp ærslabelg á Völlunum í Hafnarfirði og ítarleg skoðun átt sér stað í kringum staðsetningu á slíkum belg. Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst síðastliðinn var staðsetning á nýjum ærslabelg samþykkt og gefið út umbeðið framkvæmdaleyfi.
Nú eru skólarnir að fara aftur af stað og mörg börn að fara í fyrsta sinn ein út í umferðina. Hildur Guðjónsdóttir, hópstjóri í Öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, segir mikilvægt að æfa gönguleiðina áður en börnin byrja að ganga ein í skólann.