20 börn í lífshættu við leikskóla

Í nýlegri könnun Umferðarstofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem gerð var athugun á öryggi barna í bílum við 75 leikskóla kom m.a. fram að 20 börn reyndust í lífshættu.

Í nýlegri könnun Umferðarstofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem gerð var athugun á öryggi barna í bílum við 75 leikskóla kom m.a. fram að 20 börn reyndust í lífshættu.

Öryggi leikvallatækja og leiksvæða er einungis skoðað á 20% af þeim 277 leikskólum og 176 grunnskólum þar sem slík skoðun á að fara fram samkvæmt reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða. Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar.
Sjúkratryggingar Íslands neita að greiða tannlæknakostnað lítillar stúlku sem missti báðar framtennurnar í hjólaslysi. Helga Vala Helgadóttir, móðir stúlkunnar, segir ríkið beita stúlkuna óréttlæti. Stúlkan þarf að gangast undir aðgerð þar sem hluti verður tekin af mjaðmabeini hennar til að setja í góminn.

Sumarstúlka Vestmannaeyja var valin í Höllinni í Eyjum síðasta laugardagskvöld og var sigurvegari keppninnar hin átján ára gamla Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem keppnin er haldin, en hún fer fram hvert sumar.
Olíumengunin í Mexíkóflóa vegna lekans úr borholu BP-olíufélagsins hefur þegar skaðað sjaldgæfa sæskjaldbökustofna í flóanum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Oceana-samtakanna sem birt var í dag.
Snemma síðastliðinn laugardagsmorgun bárust lögreglunni nokkrar tilkynningar um unga telpu sem væri á gangi með sparibauk undir hendinni við eina aðal umferðargötuna í Garðabæ. Lögreglumaður á vakt fór að leita af stúlkunni en fann hana ekki fyrr en hann ákvað að líta inn í verslun Hagkaups sem er í næsta nágrenni.
Það var mikið fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardag þar sem vildaráskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í boði Stöðvar 2. Að vanda var afar fjölmennt en gert er ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns hafi verið í garðinum þegar hæst stóð, í blíðskaparveðri.
„Aðaldánarorsök barna á Íslandi eru slys,” segir Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhússins, en alþjóðleg rannsókn var kynnt á dögunum þar sem í ljós kom að Ísland er með lægstu dánartíðni barna undir fimm ára í hinum vestræna heimi. Bretar eru hinsvegar á botninum.
Rétt um ári eftir að þau misstu 16 ára son sinn eiga leikarinn John Travolta og eiginkona hans, Kelly Preston, von á öðru barni. Hann er 56 ára og hún er 48 ára.
Samkvæmt nýlegri viðhorfskönnun sem gerð var meðal foreldra barna í vistun dagforeldra eru 95% foreldra ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustu þeirra. Rúmlega 50% aðspurðra tóku þátt í könnuninni eða 92 foreldrar. Hér í Hafnarfirði er stór hópur dagforeldra sem veita samfélaginu þessa mikilvægu þjónustu og hafa margir þeirra starfað árum saman.