Mér er fullkomlega misboðið
„Mér er fullkomlega misboðið,” segir Helga Vala Helgadóttir, móðir stúlkunnar.
Þegar stúlkan var sex ára datt hún harkalega af hjóli og slasaðist. Í slysinu missti hún báðar framtennurnar. Reynt var að bjarga annarri en án árangurs. Síðustu þrjú ár hefur hún hefur notað góm með áföstum tönnum.
Í ágúst á að hefjast handa við undirbúning á því að koma nýjum framtönnum í barnið.
Það er þó ekki hlaupið að því þar sem beinið í góm hennar hefur rýnað. Því þarf hún að að fara í aðgerð þar sem hluti af bein úr mjöðm hennar verður, sett upp í munninn hennar, þvínæst teknar tveir jaxlar úr neðri góm, þeim snúið og fluttir upp í efri góm fremst til að reyna að bjarga því sem bjargað verður af beninu í efri góminum. Ef þetta er ekki gert verður barnið með innfallna efri vör.
Helga Vala Helgadóttir, móðir stúlkunnar, segir að þrautagangan eftir þetta slys hafi verið löng og ströng. Slysið hafi auk þess reynt mikið á telpuna og tannlækningar vegna þess kostað mikið fé.
Sjúkratryggingar Íslands hafa svo tilkynnt að ekki verði tekið þátt í endurgreiðlsu á aðgerðinni sem stúlkan á að gangast undir í ágúst þar sem tannvandi hennar þyki ekki nægilega alvarlegur.
Móðir stúlkunnar furðar sig á mati fagnefndarinnar.
„Synjunin byggist á því að slys þessarar litlu stúlku sem þarna missti tennurnar sínar sé ekki nógu alvarlegt,” segir Helga.
„Þessi stúlka þarf að fara í beinflutning, hún þarf að fara í tannflutning, það þarf að pússa niður þá jaxla sem hún fær í framtennurnar, það þarf að byggja upp nýja og því næst þarf hún að fara í tannréttingar,” segir Helga Vala og bætir við:
„Ef við værum upp á 17. öld þá væri andlitið á henni innfallið vegna þessa slyss. Þetta er mjög alvarlegt mál og þetta er lítil stúlka sem á framtíðina fyrir sér og ég þoli ekki þetta óréttlæti. Ef hún hefði brotið á sér nefið eða höfuðkúpubrotnað hefði íslenska tryggingakerfið og íslenska velferðarkerfið komið fullkomlega til móts við þessa stúlku. En að því að þetta voru tennurnar hennar þá látum við eins og þetta komi okkur ekki við. Mér er fullkomlega misboðið.”
{loadposition nánar fréttir}