leikskolavist

Tveggja ára börnum tryggð leikskólavist í Reykjavík

leikskolavistBorgarráð ákvað á fundi sínum í dag að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík svo hægt sé að bjóða öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss í haust eins og stefna og starfsáætlun Reykjavíkurborgar kveður á um. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, lagði tillöguna fram. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

eurovision

Eurovision: Pólverjar gefa Íslandi 12 stig

eurovisionEurovision-biblían ESCToday.com stendur fyrir sérstakri forkeppni á hverju ári þar sem fulltrúar þjóða sem taka þátt gefa lögunum stig líkt og í lokakeppninni. Hera Björk og félagar standa vel að vígi og eru í 8. sæti með 83 stig. Enn sem komið er hefur ein þjóð gefið íslenska laginu 12 stig: vinir okkar í Póllandi.

ung modir

Ung móðir í hremmingum

ung modir Eva Rún Sigurðardóttir er í níunda bekk í grunnskóla. Í lok febrúar eignaðist hún lítinn dreng sem ber nafnið Róbert Leó. Fæðingin var ekki hluti af framtíðaráætlunum hennar enda var hún búin að fá getnaðarvarnarpillu hjá lækni til að koma í veg fyrir slíkt. Þegar hún komst að því að hún ætti von á barni þrátt fyrir varúðarráðstafanir vildi hún þó ekki fara í fóstureyðingu.

oprah winfrey

Oprah sökuð um lygar

oprah winfreyFrænka sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey sakar hana um að hafa logið til um æsku sína og uppvaxtarár á bökkum Mississippi-fljótsins. Þetta kemur fram í nýrri bók slúðurdrottningarinnar Kitty Kelley um ævi Opruh og æsku. Frænkan segir að Oprah hafi ýkt allar sögurnar um fátæktina sem fjölskylda sjónvarpskonunnar hafi þurft að glíma við.