Vingast við unglingsdrengi í nafni Sveppa
„Ég kannast ekki við þessa síðu,” segir Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, en svo virðist sem óprúttin aðili fari nú um Facebook í nafni Sverris og biðji unga drengi um að verða vinir sínir.
„Ég kannast ekki við þessa síðu,” segir Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, en svo virðist sem óprúttin aðili fari nú um Facebook í nafni Sverris og biðji unga drengi um að verða vinir sínir.
Kim Kardashian, sem lét hafa eftir sér í apríl á þessu ári að hún sæi gríðarlega eftir því að hafa setið fyrir kviknakin í Playboy árið 2007, birtist nakin enn á ný og í þetta sinn á forsíðu W tímaritsins sem kemur út í nóvember.
„Ég held að þetta sé fyrsta íslenska ilmvatnið sem fer í almenna sölu. Það var reyndar íslensk listakona, Andrea Maack, sem bjó til ilmvatn á þessu ári og hafði það hluta af gjörningi,” segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við tískuvörumerkið Gyðju. Hún hyggst setja á markað ilmvatnið EFJ Eyjafjallajökull sem er framleitt úr vatni jökulsins.
Þrívegis á þessu skólaári hefur þurft að senda börn heim af leikskólum í Reykjavík vegna manneklu . Veikindi og skortur á starfsfólki hafa valdið þessu. Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður félags leikskólastjórnenda, segir yfirvöld ekki veita nægu fé til leikskóla. Síðast í gær voru 12 börn send heim af leiksskóla í Grafarvoginum.
Læknar í Skotlandi dreifa nú bæklingum meðal almennings þar í landi þar sem varað er við skorti á D-vítamíni.
Læknarnir hafa áhyggjur af því að Skotar fái ekki nægilegt D-vítamín frá sólarljósi og að þeir gæti ekki nægilega vel að sér að fá það sem upp á skortir í gegnum fæðuval sitt.
Danska leikkonan Brigitte Nielsen, 47 ára, er ánægð með líkama sinn sem er í það góðu formi að hún gæti hugsað sér að taka að sér að leika í spennumynd þar sem útlitið þarf að vera framúrskarandi.

Leikkonan Katie Holmes, 31 árs, hefur ekki í hyggju að eignast fleiri börn í augnablikinu því hún vill að Suri, 4 ára dóttir hennar og Tom Cruise, fái alla athygli hennar, Katie ræðir opinskátt um barneignir því stöðugar sögusagnir eru á kreiki beggja vegna Atlantshafsins um að hún sé barnshafandi.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur íhugar nú hvort ástæða sé til að skera upp herör gegn kanínum sem hreiðrað hafa um sig í Elliðaárdalnum. Kanínum þar hefur fjölgað gríðarlega síðustu ár og nú er svo komið að íbúar í dalnum, sem og útivistarfólk sem á þar leið um, hafa fengið nóg. Kanínurnar éti gróður, bæði á einkalóðum sem og í borgarlandinu, þær hafi áhrif á fuglalíf auk þess sem af þeim stafi slysahætta.
Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á byggingarlóðum í götunni. Eftir hrunið hafa húsgrunnar staðið ókláraðir, byggingarkranar eru orðin leiktæki krakkana í hverfinu og stór gryfja þar sem blokk átti að rísa er nú slysagildra við hlið leikskóla. Og fyrir ofan götuna má sjá glitta í ljósastaura og gangstéttir – en engin hús.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskólanema í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag.
Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í könnuninni en Penninn-Eymundsson var oftast með lægsta verðið á notuðum bókum. Mál og menning var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum en Office 1 oftast með hæsta verðið á notuðum bókum.