36 vísur Jóhannesar utanbókar
Tveir fimm ára snáðar af leikskólanum Hraunborg lærðu allar 36 Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum utanbókar og fluttu á árlegri jólahelgistund Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi á dögunum.
Tveir fimm ára snáðar af leikskólanum Hraunborg lærðu allar 36 Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum utanbókar og fluttu á árlegri jólahelgistund Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi á dögunum.
Hveragerðisbær hefur gert samning við nemendur í 7. bekk Grunnskólans í Hveragerði um að nemendur taki að sér að hreinsa rusl í Hveragerðisbæ.
Kona sem kaupir stærð 12 í Topshop getur þurft að kaupa stærð 14 í Next til að fá sambærilegt mittismál á flík þar. Mittismál flíkur í stærð 12 úr Next er 3,2 cm minna en mittismál stærðar 12 í Topshop.
Háskólinn í Reykjavík, HR, hefur bæst í hóp bakhjarla Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og ætlar að styðja við keppnina á næstu árum. Marel hefur stutt við keppnina frá upphafi, eða í nítján ár, og mun halda því áfram. Nú í haust hófst tuttugasta ár keppninnar, sem lýkur að ári.
Kostnaður vegna leikskóla og grunnskóla hjá reykvískri fjölskyldu með þrjú börn, gæti hækkað um nær 100 þúsund krónur á ári samkvæmt útreikningum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna.
„Hann viðurkenndi að hann hefði kúgast yfir þessu,” segir Nanna Rögnvaldardóttir matargúrú, sem sýndi frönskum sjónvarpsmanni í vikunni hvernig ætti að taka slátur. Franska sjónvarpsstöðin Arte var stödd hér á landi til að fjalla um hvernig Íslendingar hefðu brugðist við kreppunni sem svo skyndilega skall á þjóðinni.
Móðir í Rússlandi greip til örþrifaráða þegar dóttir hennar var á leið upp í flugvél til þess að hitta tilvonandi eiginmann sinn. Móðirin var greinilega ósátt við ráðahaginn og hringdi hún í flugvallaryfirvöld rétt fyrir flugtak og sagði að dóttirin ætlaði sér að sprengja flugvélina í loft upp.
Unglingar í 10. bekkjum grunnskóla segjast neyta mun sjaldnar áfengis nú heldur en fyrir 12 árum. Í könnunum sem Rannsóknir og greining hafa framkvæmt árlega meðal tíundubekkinga síðastliðin tólf ár sést að áfengisneysla hefur dregist verulega saman.
Ljósmæður kalla eftir leiðbeiningum heilbrigðisráðuneytisins við forgangsröðun heilbrigðisþjónustu. Verði fæðingarþjónusta skorin niður á heilbrigðisstofnunum víða á landsbyggðinni, þá versni hún, auk þess sem hún verði dýrari, bæði fyrir verðandi foreldra og heilbrigðiskerfið í heild.
Alls var 61 barn ættleitt á Íslandi í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta er nokkuð færra en árið á undan, en þá voru 69 ættleiðingar. Í fyrra voru stjúpættleiðingar 33 en frumættleiðingar 28.