Miklar skemmdir unnar á leikskólanum Funaborg: „Þetta er eiginlega bara ónýtt“
Miklar skemmdir hafa verið unnar síðustu vikur á leikskólanum Funaborg í Grafarvogi. Í október var kveikt í ruslagámi sem hafði miklar afleiðingar á starf skólans. Um síðustu helgi var nýlegt skógarhús spreyjað að utan og eru skemmdirnar að öllum líkindum varanlegar. Leikskólastýra segist ráðalaus.
