Sex jólabörn fæddust á Landspítalanum

Sex jólabörn fæddust á Landspítalanum

Sex jólabörn fæddust á Landspítalanum

Að sögn Huldu Hjartardóttur yfirlæknis á fæðingardeild Landspítalans er þetta hefðbundinn fjöldi, en um átta börn fæðast að meðaltali daglega á deildinni. Yfir hátíðirnar er þó ögn minni áhersla á að setja konur af stað ef það er ekki talið nauðsynlegt.

Töluvert var um að foreldrar eða ættingjar væru í flókinni stöðu vegna einangrunar eða sóttkvíar en fæðingardeildin slapp þó þokkalega vel í ár að sögn Huldu.

Eins og komið hefur fram eru um 100 starfsmenn Landspítala í sóttkví eða einangrun. Þar er fæðingardeildin ekki undanskilin, samkvæmt visir.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri