Brjóstamjólkurostur á matseðli
Daniel Angerer, veitingamaður í New York, hefur fengið áminningu frá heilbrigðisyfirvöldum í borginni eftir að hann bauð gestum í gildaskála sínum, Klee á Manhattaneyju, að bragða á brjóstmjólkurosti.
Daniel Angerer, veitingamaður í New York, hefur fengið áminningu frá heilbrigðisyfirvöldum í borginni eftir að hann bauð gestum í gildaskála sínum, Klee á Manhattaneyju, að bragða á brjóstmjólkurosti.
Nýjum málum hjá Stígamótum fækkar um fimmtán prósent á milli ára. Talskona Stígamóta rekur fækkunina meðal annars til niðurskurðar og þess að fólk skorti þrek í kreppunni til að leita sér hjálpar.

Omega-3 fitusýrur, sem eru ríkulegar í lýsi og feitum fiski, eru mjög öflugar í baráttu gegn krabbameini í börnum. Nýjar rannsóknir sýna að Omega-3 sýrur geta bæði ráðist á krabbameinsfrumur og verndað frískar frumur.
Þess verður hugsanlega ekki langt að bíða að krullhærði ólátabelgurinn Sveppi birtist börnum víðar en á Íslandi því bandaríska kvikmynda- og dreifingafyrirtækið Falling Letters, hefur tekið að sér sér sölu og dreifingu á barnamyndinni Algjör Sveppi og leitin að Villa.
Margrét Sigurðardóttir hefur búið til bolluvendi í 74 ár. Hún verður 87 ára á þessu ári, býr ein og hefur alltaf nóg fyrir stafni. Margrét hefur útbúið hátt í 2000 bolluvendi í ár.

Líðan þriggja til fjögurra ára gömlu telpunnar sem féll eina sex metra út um glugga í Þingholtunum í gær er stöðug að sögn vakhafandi læknis. Hún er ekki í lífshættu en læknirinn vill ekki gefa upp hvort hún hafi beinbrotnað við fallið.

Húsaleiga hefur lækkað um allt að 32% síðast liðið eitt og hálf ár. Þetta kemur fram í könnun sem Neytendasamtökin gerðu og greint er frá á heimasíðu þeirra.
Ný dönsk rannsókn sýnir að andlitsfarði fyrir börn getur verið varhugaverður. Rannsóknin leiddi í ljós að af þeim fimmtíu og fimm vörutegundum sem skoðaðar voru innihélt fimmtíu og ein þeirra efni sem geta verið skaðleg börnum.
Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundið bóluefni sem kemur í veg fyrir mýrarköldu, eða malaríu, í ungum börnum. Tilraunir á hundrað eins til sex ára börnum í Vestur Afríku benda til þess.

Miðasala á Evróvisjón keppnina í Noregi í maí hefst mánudaginn 8. febrúar, samkvæmt því sem fram kemur á opinberri heimasíðu keppninnar. 90 þúsund miðar verða í boði.