Verðmunur á skólabókum mikill.
Í könnuninni var verð á 27 algengum nýjum bókum skoðað í sex verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Að auki var verð á tíu notuðum bókum skoðað á fjórum skiptibókamörkuðum.
Verðmunur á milli skiptibókamarkaðanna var í flestum tilvikum í kringum 30 prósentum og munur á verði nýrra og notaðra námsbóka var oftast um eða yfir 100 prósent.
Mesti verðmunurinn á nýrri bók var rúm 100 prósent á skáldsögunni Lord of the Flies sem kennd er í ensku. Kostar bókin 981 kr. í Bóksölu stúdenta en 1.995 krónur í Pennanum-Eymundsson og Griffli.
{loadposition nánar fréttir}