slysagildrur á Klukkuvöllum
Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á byggingarlóðum í götunni. Eftir hrunið hafa húsgrunnar staðið ókláraðir, byggingarkranar eru orðin leiktæki krakkana í hverfinu og stór gryfja þar sem blokk átti að rísa er nú slysagildra við hlið leikskóla. Og fyrir ofan götuna má sjá glitta í ljósastaura og gangstéttir – en engin hús.
Í bréfinu segir jafnframt að sést hafi til ungra stráka klifra í vinnupöllum á 4 hæð og fyrr í vor hafi 6 ára stúlka klifrað hátt upp í einn kranana sem stendur í götunni.”
Heilbrigðiseftirlitið gerir athugasemdir við ástandið í götunni og er byggingastjóra gert að bregðast við innan fjögurra vikna annars verði dagsektum gert.
Fréttastofa ræddi við Hákon Varmar, fjölskylduföður sem býr í blokk í Klukkubergi. Hann segir íbúa reiða og vilji aðgerðir.
„Þetta er búið að standa svona í rúmlega tvö ár og við viljum að það sé eitthvað gert í þessu. Það eru ekki einu sinni gangstéttir hérna og börnin þurfa að fara út á götu til að komast leiðar sinnar. Við viljum að bærinn geri eitthvað í þessu.”
Spurður hvernig verktakarnir á svæðinu hafi brugðist við athugasemdum íbúanna segir Hákon:
„Það hefur verið skotið í kafi um leið.”
{loadposition nánar fréttir}