Styrkir fyrir 29 milljónir króna
Upplýsingar um styrkina er að finna á vef Hringsins:
Yfirlit yfir styrki úr Barnaspítalasjóði Hringsins það sem af er árinu 2018
- Fósturgreiningardeild Barna og Kvennasviðs LSH. Sex birgðavagnar. Kr. 374.328.-
- Barnaspítali Hringsins. Tveir mjólkurhitarar og 14 veggfest skiptiborð. Kr. 553.130.-
- Gjörgæslur og vöknun Fossvogi og Hringbraut. Tvö blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 2.419.186.-
- Skurðstofur LSH. Kviðspeglunarvél fyrir börn. Kr. 2.014.368.-
- Skurðstofur LSH. Blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 1.209.583.-
- Skurðstofur Fossvogi. Blöðruómtæki fyrir börn. Kr. 1.209.583.-
- Bæklunarskurðdeild LSH. Verkfærasett og teinar fyrir meðhöndlun brota á rörbeinum. Kr. 2.335.500.-
- Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Borðtölva og fartölva fyrir ungmenni með fötlun. Kr. 275.450.-
- Erfða- og sameindalæknisfræðideild LSH. Litningagreinasamstæða. Kr. 10.000.000.-
- Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Þjálfunartæki og sérhæfð þroskaleikföng. Kr. 649.346.-
- Sjúkrahúsið Akureyri. Æfingadúkka vegna þjálfunar í notkun barkatúba. Kr. 194.086.-
- Svæfinga- og gjörgæsludeild LSH Fossvogi. Tæki til að auðvelda ísetningu æðaleggja hjá börnum. Kr. 632.208.-
- Svæfinga- og gjörgæsludeild LSH Hringbraut. Tæki til að auðvelda ísetningu æðaleggja hjá börnum. Kr. 632.208.-
- Skurðstofur LSH Hringbraut. Nathanson lifrarhaki fyrir börn. Kr. 470.660.-
- Vökudeild Barnaspítala Hringsins. Síriti/monitor til að mæla lífsmörk. Kr. 724.042.-
- Gjörgæsludeild Fossvogi. Ómtæki fyrir börn. Kr. 4.500.000.-
- Heimili fyrir börn, Þingavaði 3. My Base dýna og kjöltupúði, tveir Sensit stólar og skammelar. Kr. 796.533.-
Samtals kr. 28.990.211.-
Ritstjórn dagmamma.is hvetur fólk til að mæta á jólakaffi barnaspítala hringsins (skoða viðburð) og jólabasar (skoða viðburð) til að styrkja gott málefni, samkvæmt hringuirnn.
{loadposition nánar fréttir}