Ljósmæður vilja leiðréttingu en ekki hækkun um fram aðra
Niðurstöður úr atkvæðagreiðslu ljósmæðra um yfirvinnubannið lágu fyrir í gær. Ríflega þrír fjórðu félagsmanna greiddu atkvæði og af þeim voru níutíu prósent fylgjandi því að boða til yfirvinnubanns.
„Þetta felur meðal annars í sér að það verður að gera öllum kleift að taka kaffipásu í vinnunni en hingað til hafa þær verið unnar og greiddar í yfirvinnu. Sé ekki hægt að koma kaffipásu við verða ljósmæður að fara fyrr af vaktinni sem pásunni nemur,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndarinnar.
Þá munu ljósmæður ekki taka á sig aukavaktir heldur eingöngu vinna sína vinnuskyldu samkvæmt fyrirliggjandi vaktaplani. Katrín segir að undanfarið hafi það verið regla en ekki undantekning að þurft hafi að kalla inn manneskjur á aukavaktir. Slíkt verði ekki hægt nú.
„Við höfum staðið í langri og strangri baráttu. Við erum að koma undan gerðardómi og eigum enn inni ógreidd laun úr síðasta verkfalli. Við erum að fara fram á leiðréttingu á launum en ekki launahækkanir umfram aðra líkt og samninganefnd ríkisins hefur talað um,“ segir Katrín.
Næsti fundur í deilunni er boðaður hjá ríkissáttasemjara á fimmtudag. Aðspurð um hve langt sé á milli ljósmæðra og ríkisins, eða hve háar kröfur ljósmæðra séu, segir Katrín að um það ríki trúnaður.
„Við höfum ekki fundið fyrir samningsvilja eða umboði á þessum eina fundi frá því að síðasti kjarasamningur var felldur í atkvæðagreiðslu.“
Sem fyrr segir mun boðað yfirvinnubann, að því gefnu að samningar náist ekki, taka gildi eftir tvær vikur. Katrín segir að ef af því verði muni það hafa mikil áhrif. Tólf ljósmæður á Landspítalanum, sem sögðu upp störfum í vor, unnu sína síðustu vakt í gær. Níu til viðbótar hafa sagt starfi sínu lausu.
„Við vonum af einlægni að það muni ekki koma til yfirvinnubanns. Að sjálfsögðu bindum við miklar vonir við að þau mæti með umboð og vilja og málið verði klárað áður en eitthvað alvarlegt gerist,“ segir Katrín.
„Forstjóri spítalans hefur kynnt fyrir mér neyðaráætlun sem ætluð er til að bregðast við ástandinu til að tryggja öryggi sjúklinga eins og nokkur kostur er á. Sú neyðaráætlun er unnin í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir. Staðan er alvarleg nú og verður alvarlegri ef til frekari aðgerða kemur,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís segir samningaviðræðurnar í höndum samninganefndar ríkisins. Hún viti ekki nákvæmlega hve mikið ber í milli. „Ég sté inn í deilurnar fyrir síðasta samning en honum var hafnað. Ég hef ekki gert það síðan það gerðist,“ segir Svandís., samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}