Sama upphæð fylgi hverju barni óháð rekstrarformi

Sama upphæð fylgi hverju barni óháð rekstrarformi

Sama upphæð fylgi hverju barni óháð rekstrarformi

„Sonur minn gengur í Ísaksskóla. Skólinn er stórkostlegur og hefur ljóslega sannað gildi sitt. Þar sem skólinn er sjálfstætt starfandi greiðir borgin lægri fjárhæð með menntun nemenda hans en menntun barna í borgarreknum skólum. Foreldrar barna í Ísaksskóla, og öðrum sjálfstæðum skólum borgarinnar, verða því að greiða skólagjöld,“ ritar Hildur á Facebook-síðu sína þar sem hún greinir frá tillögunni.

Skólagjöld í Ísaksskóla eru 210.000 krónur á ári fyrir börn á aldrinum sex til níu ára og tíu þúsund krónum lægri fyrir fimm ára börn. Eins er hægt að fá systkinaafslátt.

„Þetta hefur í rauninni verið eitt af baráttumálum sjálfstæðra skóla í langan tíma. Í dag er rekstrarumhverfi þeirra erfitt því þeir fá ekki sömu fjárframlög og borgarreknu skólarnir og skólagjöldin duga ekki þannig að þeir standa í rauninni verr að vígi,“ segir Hildur.

„Okkur þykir rétt að öll börn í borginni fái sama framlag með sinni menntun og það sé svo í höndum foreldra að velja í hvaða skóla barnið fer,“ segir hún. „Eins og staðan er í dag er það ekkert fyrir alla að borga skólagjöld með börnunum sínum.“

Aðspurð segist Hildur spennt að sjá hvernig tekið verði við tillögunni, sem líkt og fyrr segir verður lögð fram á morgun.

„Innan borgarstjórnar eru margir sem aðhyllast hugmyndafræði um jöfn tækifæri fyrir börn og svo er kominn inn flokkur eins og Viðreisn sem talar fyrir því að styðja við sjálfstæða skóla. Þannig að ég bara vona að þetta fái góðan hljómgrunn,“ segir Hildur að lokum , samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

oli
Author: oli

Vefstjóri