Prjónuðu bangsarnir veita börnum huggun í erfiðum aðstæðum

Prjónuðu bangsarnir veita börnum huggun í erfiðum aðstæðum

Arndís Hilmarsdóttir setti af stað samfélagsverkefnið Sjúkrabílabangsar sem gengur út á að prjóna bangsa fyrir börn sem þurfa á aðstoð sjúkraflutningmanna að halda. Bangsinn er hugsaður sem huggun og fær barnið auðvitað að eiga bangsann. Verkefnið hefur stækkað ört og nokkur hundruð taka þátt í að prjóna bangsa sem tengiliðir um land allt sjá svo um að afhenda.

Lausnin sé að fækka börnum á leikskólum

Lausnin sé að fækka börnum á leikskólum

„Þetta leysir engan vanda til frambúðar. Ég veit að borgin gerir sér grein fyrir því,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, um þá ákvörðun borgarráðs að veita leikskólakennurum og öðru starfsfólki leikskóla borgarinnar 20 þúsund króna eingreiðslu sem lið í aðgerðum til að mæta manneklu og efla mannauð.

Ljósmæður fá greidd vangoldin laun eftir 2 ára þref

Ljósmæður fá greidd vangoldin laun eftir 2 ára þref

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ríkinu hafi verið óheimilt að skerða laun fimm ljósmæðra, sem störfuðu á Landspítalanum á því tímabili sem verkfallsaðgerðir Ljósmæðrafélags Íslands stóðu yfir árið 2015, með þeim hætti sem gert var. Ríkinu beri að greiða ljósmæðrunum fjárhæðir sem nema hinni ólögmætu skerðingu ásamt dráttarvöxtum, auk málskostnaðar.