Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 600 þúsund krónur

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 600 þúsund krónur

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka í 600 þúsund krónur

 

Haft er eftir Ásmundi á vef Stjórnarráðsins að hækkunin sé mikilvæg og sýni í verki áherslur stjórnvalda á eflingu stuðnings við börn og barnafjölskyldur.

„Við hækkuðum hámarksgreiðslurnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtalsverðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekjulágum foreldrum til góða.“

Ráðherra segir áfram verða unnið að því að styðja betur við foreldra í fæðingarorlofi og þar sé meðal annars horft til þess að lengja fæðingarorlofið.

„Þetta er mikilvægt velferðarmál og eins vil ég nefna sérstaklega að þetta er tvímælalaust lóð á vogarskálar aukins kynjajafnréttis.“

Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2019. Aukin framlög ríkisins vegna hækkunar hámarksgreiðslna fæðingarorlofs um áramótin eru áætluð um 1,8 milljarður króna á ársgrundvelli., samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

oli
Author: oli

Vefstjóri