Styttist í miðasölu
Fyrirtækið Billetservice sér um miðasöluna, en það er eini opinberi söluaðili keppninnar. Miðasala hefst klukkan 9 að morgni.
Hægt er að fá miða á forkeppnirnar tvær, 25. og 27. maí, búningarennsli og einnig á aðalkeppnina 29. maí. Miðaverð á forkeppni og búningarennsli er frá rúmum 6 þúsund íslenskum krónum og upp í 13 þúsund, en miðar á aðalkeppnina kosta frá rúmum 17 þúsundum og upp í 35 þúsund. Ofan á verðið bætist bókunargjald.
Forkeppnirnar, búningarennslin og aðalkeppnin fara fram á sama stað, í Telenor Arena í Bærum, sem er um 15 mínútna akstur frá Osló. Ekki er hægt að komast þangað á einkabifreiðum, þar sem ekki er boðið upp á bílastæði. Nægar almenningssamgöngur eru í boði.
{loadposition nánar fréttir}