Prinsessa fædd í London
Katrín, hertogaynja af Cambridge, fæddi í gær morgun stúlkubarn á St Mary’s spítalanum í London. Barnið kom í heiminn um klukkan hálfníu og var 15 merkur.
Katrín, hertogaynja af Cambridge, fæddi í gær morgun stúlkubarn á St Mary’s spítalanum í London. Barnið kom í heiminn um klukkan hálfníu og var 15 merkur.
Reglur um yfirfærslu foreldraréttar hvað varðar staðgöngumæðrun eru mun rýmri en reglur um ættleiðingu í nýju frumvarpi um staðgöngumæðrun. Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu, veltir því fyrir sér hvers vegna svo sé og segir suma hafa velt því upp hvort ekki ætti frekar að gera ættleiðingu auðveldari fremur en að heimila staðgöngumæðrun. Enda sé sú leið umdeild og flókin í framkvæmd.
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur um allt land í áttunda sinn í gær. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskóla, vekja athygli á hlutverki þeirra og stari leikskólakennara. Þann 6. febrúar árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Börn sem koma frá tekjulágum heimilum búa við verri tannheilsu en börn sem koma frá tekjuháum heimilum. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Bjargar Steinarsdóttur fyrir meistararitgerð hennar í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands.
Frá og með 1. janúar næstkomandi verða tannlækningar 8 og 9 ára gamalla barna greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2.500 króna árlegu komugjaldi.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem móta á tillögu að framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum hér á landi en þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.
„Það er miðað við að við skilum af okkur á síðustu mánuðum þessa árs,“ segir Dögg Pálsdóttir, formaður starfshóps sem vinnur að gerð frumvarps um staðgöngumæðrun. „Í allra síðasta lagi í desember.“ Dögg tók við formennsku nefndarinnar nú í apríl. Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur gegndi áður stöðunni.
„Samkvæmt þeim tölum sem ég hef tekið saman verða rúmlega 90 prósent allra leikskóladeilda á öllu landinu lokaðar 19. júní, hafi samningar ekki tekist við leikskólakennara fyrir þann tíma,“ segir Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður Félags stjórnenda á leikskólum.
Leikskólakennarar munu efna til vinnustöðvunar þann 19. júní næstkomandi, hafi ekki nást samningar við Samband íslenskra sveitarfélaga. Yfirgnæfandi meirihluti leikskólakennara samþykkti vinnustöðvunina í atkvæðagreiðslu.
Ónæmt afbrigði e. coli-bakteríunnar greindist á vökudeild Landspítalans um mánaðamót febrúar og mars. Aðgerðir fóru strax í gang til að hindra frekari dreyfingu á deildinni.