Pabbi drengsins: „Eftirköstin fyrir hann verða sem betur fer engin“

Pabbi drengsins: „Eftirköstin fyrir hann verða sem betur fer engin“

Fjölskylda í Kópavoginum er farin að brosa eftir erfiðan háltíma og rúmlega það þegar bíl fjölskyldunnar var stolið með tveggja ára son innanborðs. Faðirinn hafði skroppið inn á leikskóla í Salahverfinu í Kópavogi þar sem eldri sonur er í dagvistun en sá tveggja ára hafði verið í aðlögun á sama leikskóla fyrr um daginn.

Smáforrit auðveldar samskipti við leikskóla

Smáforrit auðveldar samskipti við leikskóla

„Þetta snýst um að einfalda vinnu leikskólakennarans til að hann fái meiri tíma til að sinna því sem hann þarf að sinna. Ég er sjálf kennari og veit að við þurfum að spara tíma og skriffinnska getur tekið mikinn tíma,“ segir Anna Margrét Magnúsdóttir. Hún, ásamt manni sínum Branislav Dragojlovic, er á bak við snjallsímaforritið Kidsy. Þau eru nú í óðaönn að undirbúa komu þess á íslenskan markað.

Skoða hvort æskilegt sé að fjölga fæðingarstöðum á ný

Skoða hvort æskilegt sé að fjölga fæðingarstöðum á ný

Heilbrigðisráðuneytið skoðar nú hvort og með hvaða hætti væri æskilegt að fjölga á ný fæðingarstöðum og hækka þjónustustig á einhverjum sem fyrir eru. Fæðingarstöðum hefur fækkað nokkuð á undanförnum árum og áratugum því erfitt hefur reynst að manna stöður sérfræðinga eins og svæfingalækna og fæðingarlækna á litlum stofnunum í dreifbýli.