Skila af sér frumvarpi í lok árs

Skila af sér frumvarpi í lok árs

Skila af sér frumvarpi í lok árs

 

Skila af sér frumvarpi í lok ársStaðgöngumæðrun var fyrst rædd á Alþingi árið 2007 en þingsályktunartillaga um skipun starfshóps var samþykkt snemma árs 2012. Alþingi skipaði svo í hópinn í september sama ár.

Dögg segir hópinn hafa haldið mikla vinnufundi að undanförnu og það verði aftur gert að loknum sumarfríum. „Vinnuplanið gerir ráð fyrir þessum tímamörkum og við erum algjörlega einbeitt að halda því.“ Til stendur að leggja frumvarpið fram á vorþingi.

Umfangsmikil gagnaöflun hafði farið fram þegar Dögg tók við formennsku starfshópsins. „Það er mikið búið að vinna í þessu, ég sé það alveg.“

„Ég vil vinna að þessu verkefni þannig að tímaþátturinn sé ekki að valda því að við vöndum ekki til verka. Þetta er þannig vaxið mál að við þurfum að gefa því þann tíma sem þarf,“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í samtali við Vísi í fyrrasumar, spurður hvers vegna vinnan hefði dregist á langinn, samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri