Vandi foreldra verður barna

Vandi foreldra verður barna

„Við gerðum alvarlegar athugasemdir við geðheilbrigðisstefnuna þegar hún var lögð fram í sumar og lýstum yfir þungum áhyggjum af því að í henni var ekki að finna áætlanir um að tryggja þjónustu við yngsta og viðkvæmasta aldurshópinn frá meðgöngu að tveggja ára aldri þrátt fyrir að að fjöldi rannsókna í taugavísindum bendi til þess að þessi tími hafi gríðarlega mikil áhrif á framtíðarheilbrigði fólks,“ segir Sæunn Kjartansdóttir hjá Miðstöð foreldra og barna.

Býr sig undir langa og stranga forsjárdeilu milli landa

Býr sig undir langa og stranga forsjárdeilu milli landa

„Þetta er komið á borð lögreglunnar hér í Noregi, til dómsmálaráðuneytisins og ég er búinn að heyra í lögfræðingi vegna þessa,“ segir Ragnar Vilhelmssen Hafsteinsson í samtali við Vísi. Málið sem um ræðir varðar son hans en fyrrverandi sambýliskona Ragnars hefur ekki skilað syni hans til baka eftir að hún dvaldi hjá henni í vetrarfríi.

Fyrrverandi þingmaður fékk tæpar tólf milljónir fyrir læsisverkefnið

Fyrrverandi þingmaður fékk tæpar tólf milljónir fyrir læsisverkefnið

Fyrirtæki í eigu Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, fékk samtals 11,6 milljónir króna fyrir vinnu fyrir ráðuneyti menntamála við að stýra verkefnaáætlun um þjóðarátak vegna læsis barna í grunnskólum. Staða verkefnisstjóra var ekki auglýst opinberlega.

Rýmri reglur um staðgöngumæðrun

Rýmri reglur um staðgöngumæðrun

Reglur um yfirfærslu foreldraréttar hvað varðar staðgöngumæðrun eru mun rýmri en reglur um ættleiðingu í nýju frumvarpi um staðgöngumæðrun. Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu, veltir því fyrir sér hvers vegna svo sé og segir suma hafa velt því upp hvort ekki ætti frekar að gera ættleiðingu auðveldari fremur en að heimila staðgöngumæðrun. Enda sé sú leið umdeild og flókin í framkvæmd.