Miklar skemmdir unnar á leikskólanum Funaborg: „Þetta er eiginlega bara ónýtt“
Í byrjun október var kveikt í ruslagámi við leikskólann með þeim afleiðingum að rúða sprakk og mikill reykur komst inn í húsið. Þetta gerðist aðfaranótt föstudags og var leikskólinn lokaður daginn eftir. Einnig var lokað á mánudeginum eftir þar sem starfsdagur var færður til vegna málsins.
Um síðustu helgi var nýlegt skógarhús spreyjað að utan og ljóst að tjónið er mikið. „Þetta er splunkunýtt hús,“ segir Agnes Jónsdóttir, leikskólastýra Funaborgar.
„Við opnuðum þessa deild í febrúar. Húsið er ofboðslega fallegt með hráum við utan á. Spreyið fer svo langt inn í viðinn að það er ekki hægt að þrífa það af, ekki hægt að pússa í burtu. Við höfum heyrt að það eina sem hægt er að gera sé að mála upp á nýtt sem við viljum alls ekki. Þetta er eiginlega bara ónýtt.“
„Það hlupu allir upp til handa og fóta“
Agnes segir mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um hversu miklir fjármunir og mannafli fari í útköll og lagfæringar vegna slíkra mála. „Daginn eftir brunann var kallað út þrjátíu manna hreinsunarlið, tryggingar mættu á svæðið og starfsmenn frá skóla-og frístundarsviði Reykjavíkurborgar. Viðgerðarhópur mætti á svæðið til að laga húsið að utan og innan,“ segir hún.
„Það þurfti að kalla til málara, pípara, rafvirkja og fleiri. Það þurfti að þrífa hvern einasta sentimetra og vorum fyrst núna, mánuði seinna, að fá dót úr hreinsun. Við þurftum að innsigla þrjú svæði í heila viku og endurskipuleggja alla starfsemina.“
Hún tekur fram að skóla- og frístundaráð borgarinnar hafi brugðist mjög vel við. „Batteríið sem fór í gang morguninn eftir brunann var stórkostlegt. Það hlupu allir upp til handa og fóta.“
Öllum brugðið vegna málsins
Þá segir Agnes foreldra hafa sýnt mikinn skilning en þeim sé brugðið vegna málsins. „Foreldrarnir hafa verið dásamlegir, en það eru allir sjokkeraðir yfir þessu. Börnin líka, þau vita af þessu og tala mikið um þetta. Þau ræða mikið um veggjakrotið líka, enda erum við alltaf með það fyrir augum.“
Ekkert er vitað um hverjir standa að baki skemmdanna. Agnes telur þó víst að ekki sé um börn að ræða. „Það var kveikt í klukkan hálf tvö um nótt. Það er að minnsta kosti ljóst að ekki er um nein smábörn að ræða.“, samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}