Einfalda þurfi einkunnakerfið og setja skýrari verklagsreglur
Námsmat í grunnskólum er óskýrt, að mati kennara sem segist skilja að foreldrar og nemendur séu ósáttir við einkunnir. Munur sé á einkunnagjöf milli skóla.
Námsmat í grunnskólum er óskýrt, að mati kennara sem segist skilja að foreldrar og nemendur séu ósáttir við einkunnir. Munur sé á einkunnagjöf milli skóla.
Barna-og menntamálaráðherra Danmerkur hefur lagt fram lagafrumvarp sem bannar spjaldtölvur í leikskólum. Lektor telur snjalltæki ekki vera vandamál í íslenskum leikskólum.
Embætti landlæknis segir mikilvægt að foreldrar barna og ungmenna sem glíma við svefnvandamál noti melatónín með skynsömum hætti. Melatónín bætiefni ætti að umgangast eins og öll önnur lyf auk þess sem geyma þurfi það á öruggum stað. Notkunin hafi aukist hérlendis.
Frjósemi hefur aldrei verið minni á Íslandi síðan mælingar hófust árið 1853. Frjósemistölur eru langt undir viðmiðum um þá frjósemi sem þarf til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Frjósemi hefur ekki náð því viðmiði í yfir tíu ár. Fjöldi lifandi barna sem fæddust á Íslandi árið 2022 var 4,391 samkvæmt tölum sem Hagstofan…
Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls ellefu nöfn á mannanafnaskrá í gær. Einu nafni var hafnað.
Nýbökuð móðir fæddi barn sitt undir berum himni í Reykjavík í morgun. Móður og barni heilsast vel.
Fréttastofa leit við í Iðnó þar sem verið var að setja á stofn með formlegum hætti Kvæðabarnafjelag Laufásborgar. Athöfnin fólst í sannfærandi flutningi leikskólabarna á sígildum íslenskum rímnakveðskap, en sú mæta listgrein hefur eins og þekkt er áratugum saman legið nokkuð óbætt hjá garði. Hér gengur hún í löngu tímabæra endurnýjun lífdaga.
Svokallað bleyjulaust uppeldi nýtur vaxandi vinsælda hér á landi en þá er ungabörnum boðið að nota kopp í stað bleyju – í sumum tilfellum strax frá fæðingu. Mæður segja ótal kosti fólgna í aðferðafræðinni
Par í Reykjavík sá það í hillingum að eignast fyrsta barn ársins 2023, og það gekk eftir. Barnið er drengur sem kom í heiminn stuttu eftir miðnætti. Búið er að velja nafn, en það er enn leyndarmál.
„Allir eru farnir út að vinna, karlar og konur, frá eins árs eða yngri börnum og við erum komin í öngstræti að mínu mati. Erum við raunverulega að segja að eina tilboðið sem við viljum gera eins árs gömlum börnum sé heils dags leikskóli?“