Fæddi undir berum himni á leið út í sjúkra­bíl

Fæddi undir berum himni á leið út í sjúkra­bíl

Fæddi undir berum himni á leið út í sjúkra­bíl

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins greinir frá því að sjúkrabíll hafi verið kallaður út í morgun vegna yfirvofandi fæðingar, sem brátt bar að. Svo fór að móðirin fæddi utandyra, þegar sjúkraflutningamenn voru á leiðinni.

Faðir barnsins segir í samtali við fréttastofu að barnið hafi fæðst úti í garði, fyrir utan hús nýbökuðu foreldranna, um það bil fimm mínútum áður en sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Þau komu sér fyrir inni í hlýjum stigagangi íbúðarhúss síns og biðu rólega eftir sjúkraflutningamönnunum eftir fæðinguna.

„Alveg ný upplifun fyrir okkar fólk! Móður og barni heilsast ljómandi vel, þau voru flutt á fæðingardeild Landspítala til skoðunar,“ segir í færslu slökkviliðsins á Facebook, samkvæmt visir.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri