Lækka leikskólagjöld um 25 prósent
„Lækkun leikskólagjalda um 25% frá 1. janúar er ætlað að koma til móts við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu. Tómstundastyrkir með hverju barni 6 – 18 ára verða kr. 50.000,- og niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum, sem nú nema kr. 75.000,- verða einnig hækkaðar frá 1. janúar nk,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.
Álagning fasteignagjalda í A-flokki verður 0,20% af matsverði íbúðarhúsnæðis og lóðar og álagningarprósenta útsvars verður langt undir hámarki eða 13,70%, en hámarkið er 14,52%.
Fram kemur að helstu framkvæmdir á næsta ári felist í byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis. Einnig stendur til að endurnýja gervigrasið á knattspyrnuvelli Íþróttafélagsins Gróttu ásamt því að sinna öðrum almennum viðhaldsframkvæmdum. Þá er fullyrt að skuldahlutfall sé komið undir 50% og fari lækkandi á hverju ári, samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}