Missti vatnið í þann mund sem gosið hófst
Um sex að morgni síðasta fimmtudags hófst ótrúleg atburðarás fyrir litla fjölskyldu í Reykjanesbæ. Ung móðir missti vatnið í sömu andrá og gos hófst fyrir utan stofugluggann.
Um sex að morgni síðasta fimmtudags hófst ótrúleg atburðarás fyrir litla fjölskyldu í Reykjanesbæ. Ung móðir missti vatnið í sömu andrá og gos hófst fyrir utan stofugluggann.
Alls hafa fimmtíu einstaklingar sótt um niðurgreiðslu til Reykjavíkurborgar vegna barna sem eru 18 mánaða eða eldri og eru enn hjá dagforeldrum. Opnað var fyrir umsóknir um niðurgreiðslur í síðustu viku. Skóla- og frístundasvið skoðar nú hvort hægt sé að veita fleirum niðurgreiðslu. Niðurgreiðslan er tilkomin vegna þess að börnin ættu samkvæmt viðmiðum borgarinnar að…
Foreldrar sem hafa orðið fyrir tekjumissi þar sem 21 mánaða gömul dóttir þeirra fær hvorki vistun hjá dagforeldrum né pláss í leikskóla segja stöðuna í leikskóla-og dagforeldramálum svo slæma að stór hópur muni ekki fá krónu frá borgarstjórn sem boðað hafi styrki handa foreldrum. „Við erum búin að reyna allt sem við getum. Ég veit…
Gleðilegt ár og þökkum viðskiptin á árinu.
Foreldrar barna 18 mánaða og eldri geta átt von á mörg hundruð þúsunda endurgreiðslu eftir áramót frá Reykjavíkurborg vegna greiddra dagforeldragjalda. Ný gjaldskrá og aukinn stuðningur við foreldra voru samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Alls eru um 100 til 200 börn á þessum aldri enn hjá dagforeldrum. Foreldrar barna 18 mánaða og eldri munu…
Borgarráð samþykkti tvær megin breytingar á dagforeldrakerfinu á fundi sínum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að borgin hafi útbúið þjónustusamning sem dagforeldrum í borginni stendur til boða auk nýrrar gjaldskrár fyrir átján mánaða og eldri sem taki gildi þann 1. febrúar næstkomandi. Þá muni foreldrar greiða sama gjald fyrir…
Hafnarfjarðarbær boðar nú miklar breytingar á leikskólastarfi. Bærinn bætist í hóp þeirra sveitarfélaga sem lækka gjald fyrir börn sem vistuð eru á leikskólum í sex tíma eða skemur á dag. Hafnarfjarðarbær hefur sent frá sér tilkynningu þar sem boðaðar eru breytingar á leikskólastarfi. Tekið er fram að markmið aðgerðanna sé að auka sveigjanleika innan skóladagsins…
Niðurstöður nýrrar PISA-könnunar sýna minni árangur nemenda í þátttökulöndum miðað við fyrri kannanir, meðal annars á öllum Norðurlöndum og árangurinn er minni á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum. Aðeins tvö af hverjum þremur fimmtán ára börnum búa yfir grunnhæfni í lesskilningi og aðeins 53 prósent pilta. Þetta segir í tilkynningu um niðurstöðurnar á vef Stjórnarráðs…
Meirihluti skóla hefur sett reglur um farsímanotkun barna. Oftast er hún háð takmörkunum og jafnvel staðsetningu. Algengara er að eldri börn megi vera með síma en þau yngri. Stundum þurfa börnin símann til að komast í almenningssamgöngur og fá því að hafa hann í töskunni. Langflestir skólar hafa sett reglur um símanotkun nemenda og nemendur…
Fimm brjóstagjafaráðgjafar vilja gefa út handbók um brjóstagjöf. Þær segja misvísandi upplýsingar víða og foreldra oft ekki nægilega vel undirbúna fyrir verkefnið eftir fæðingu. Þær vilja auka tíðni brjóstagjafar og að konur séu studdar betur í það verkefni. Þær Hallfríður Kristín Jónsdóttir, Hulda Sigurlína Þórðardóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Hildur Ármannsdóttir og Þórunn Pálsdóttir eru allar brjóstagjafaráðgjafar….