Erfitt að losna við meðgöngukílóin
Þúsundþjalasmiðurinn Hilary Duff eignaðist soninn Luca fyrir fjórtán mánuðum síðan og segir það hafa verið mjög erfitt að losna við meðgöngukílóin.
Þúsundþjalasmiðurinn Hilary Duff eignaðist soninn Luca fyrir fjórtán mánuðum síðan og segir það hafa verið mjög erfitt að losna við meðgöngukílóin.
Tveggja daga gömlu barni var um helgina bjargað úr skólpröri í fjölbýlishúsi í Kína. Kínverskir fjölmiðlar greindu frá þessu í fyrradag.
Íslenskt barn undir tveggja ára aldri greindist nýlega með bráðaofnæmi fyrir rauðu kjöti. Þetta er eitt fyrsta tilfelli kjötofnæmis á Íslandi en slíkt ofnæmi hefur færst í vöxt síðastliðinn áratug.
Félag áhugakvenna um breytingaskeiðið var formlega stofnað í gær. „Löngu tímabært“, segir Edda Arinbjarnar, félagsfræðingur og formaður nýstofnaðs félags.
Það hefur fengist staðfest að lifrarbólgufaraldur sem fer um norðurlöndin sé rakinn til innfluttra frosinna jarðarberja, samkvæmt frétt Matvælastofnunar frá því í gær. Matvælastofnun hvetur fólk til þess að neyta jarðarberjanna ekki nema þau hafi verið soðin.
„Ég sinni mjög mörgum börnum á heilsugæslunni þar sem ég er að vinna og þau eru oft að spyrja um hitt og þetta,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari í Diktu. Hann hefur gefið út bókina Viltu vita meira um líkamann?
Ný bresk rannsókn leiðir í ljós að ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða en börn sem sofa ein í rúmi.
Jennifer Aniston er kynþokkafyllsta kona allra tíma, ef marka má bandaríska tímaritið Men‘s Health.
Aukinn hlutur kvenna í fjölmiðlum er nýtt átaksverkefni Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA). Þetta var kynnt á aðalfundi félagsins í fyrradag, en tímarammi átaksins er til ársins 2017. Verkefninu er ætlað að auka hlut kvenna í fjölmiðlum þannig að konur verði sem sýnilegastar í fréttum og þjóðfélagsumræðu. Á þann hátt stuðlar félagið að því að mannauður sé nýttur sem best og þekking kvenna jafnt sem karla njóti sín í allri umræðu.
Ný rannsókn leiðir í ljós að handtöskur kvenna bera með sér fleiri bakteríur en meðalsóðalegt klósett.