Meðlag hækkar um tíu prósent á milli ára

Meðlag hækkar um tíu prósent á milli ára

Meðlag hækkar um tíu prósent á milli ára

Gunnar Kristinn Þórðarson, framkvæmdastjóri Samtaka umgengnisforeldra, segir að hækkunin sé óþarflega há því á sama tíma sé verðbólga um tvö prósent. „Þetta er mjög óheppilegt og endurspeglar að þegar troðið er í velferðarkalkúninn þá skerðast hagsmunir meðlagsgreiðenda, því þeir standa fyrir utan kerfið.“

„Þegar þú hækkar bætur þá vænkast hagsmunir allra þeirra sem þurfa á opinberri aðstoð að halda nema meðlagsgreiðenda,“ segir Gunnar. Upphæð meðlags fylgir fjárhæð barnalífeyris. Þó er hægt að úrskurða um hærra meðlag en þá er það móttakandi meðlags sem innheimtir mismuninn.

Upphæð meðlags nemur nú 29.469 krónum sem greiðist með hverju barni fyrir sig. Upphæðin getur því hæglega nálgast hundrað þúsund krónur á mánuði ef greitt er með þremur börnum. Samkvæmt tölum frá Innheimtustofnun sveitarfélaga fyrir árið 2014 hefur börnum sem greitt er með meðlag fækkað á milli ára. Árið 2009 var greitt meðlag með 21.417 börnum á Íslandi en árið 2014 hefur börnunum fækkað í 19.423.

Þetta rímar við að jöfn umgengni foreldra er að riðja sér rúms í enn frekari mæli og þá er sjaldnar farið fram á meðlag.

Gunnar segir að staðan sé skökk því umgengnisforeldrar hafa ekki rétt á barnabótum. „Þegar það á að sýna aðhald í velferðarmálum, þá er komið til móts við almenning með því að hækka barnabætur.“

Hann segir að Samtök umgengnisforeldra vilji sjá breytingar á kerfinu til að koma til móts við meðlagsgreiðendur. Hann leggur til að tekinn verði upp skattaafsláttur fyrir meðlagsgreiðendur. Með þeim hætti verði greiðslur ekki skertar til lögheimilisforeldra en umgengnisforeldrar hvattir frekar til að sinna skyldum sínum.Meðlag hækkar um tíu prósent á milli ára

Árið 2015 voru 11.491 kona skráð einstæð með börn á móti 1.137 einstæðum körlum. Á vef Hagstofunnar kemur ekki fram hve oft foreldrar eru með jafna umgengni. Meðlagsgreiðendur eru í miklum meirihluta karlar, samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

oli
Author: oli

Vefstjóri