Skoða hvort æskilegt sé að fjölga fæðingarstöðum á ný

Skoða hvort æskilegt sé að fjölga fæðingarstöðum á ný

Skoða hvort æskilegt sé að fjölga fæðingarstöðum á ný

 

Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafney Magnúsdóttur, þingmanni Vinstri grænna, um fækkun fæðingarstaða og ungbarnaeftirlit í dreifbýli. Kristján segir mikinn kostnað fylgja því að halda úti vöktum fyrir sérfræðinga, og að því hafi heilbrigðisstofnanir í dreifbýli dregið úr þeirri þjónustu.

Í svari Kristjáns kemur fram að fjöldi fæðinga á Íslandi hafi verið á bilinu 4300 til 4500 á ári undanfarin tíu ár. Samkvæmt fæðingarskrá fæddust níu börn á leið á fæðingarstað árið 2014, átta á árinu 2013, þrjú árið 2012 og eitt 2011. Ekki kemur fram hversu mörg börn fæðast á leið á fæðingarstað í þéttbýli og hversu mörg í dreifbýli.

Þá segir hann heilbrigðisyfirvöld vilja leitast við að tryggja jafnræði í aðgengi að bestu mögulegu fæðingarþjónustu með því að aðstoða fjölskyldur svo þær geti dvalið nærri fæðingarstað dagana fyrir áætlaða fæðingu barns, meðal annars með aðgengi að sjúkrahóteli, samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

oli
Author: oli

Vefstjóri