Undanþágur ógna öryggi sundgesta
Verkefnisstjóri um slysavarnir barna og unglinga segir að undanþágur geti ógnað öryggi sundlaugargesta og kallar eftir áhættumati.
Í reglugerðinni sem tók gildi um síðustu áramót er meðal annars tekið til aðbúnaðar og öryggis sundgesta. Þar kemur fram að starfsfólk skuli ávallt vakta laugina og ekki sinna öðrum störfum samhliða.
Nokkrar sundlaugar hafa sent umhverfisráðuneytinu erindi þar sem óskað er eftir undanþágu frá þessu ákvæði. Það eru sundlaugarnar í Vogum, Grundarfirði, Stykkishólmi, Laugum í Sælingsdal, Grettislaug í Reykhólahreppi og sundlaugarnar á Drangsnesi, Skagaströnd, Grenivík og Laugum í Þingeyjarsveit.
Þessi erindi bíða afgreiðslu en umhverfisráðuneytið hefur veitt sundlaugunum í Norðfirði, Eskifirði og Stöðvarfirði, undanþágur og gegna starfsmenn þar öðrum störfum meðfram laugargæslu.
Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisráðuneytinu eru undanþágurnar tímabundnar og aðeins veittar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og við sérstakar aðstæður.
Herdísi Storgaard verkefnisstjóra Árvekni líst illa á að vikið sé frá reglugerðinni. „Við höfum líka upplifað það á síðustu þremur árum að börn drukkna í sundi og við verðum að taka það mjög alvarlega, við getum ekki sætt okkur við þetta,“ segir Herdís.
Hún vill að áhættumat verði gert á öllum sundstöðum landsins. „Þegar maður er komin með áhættumat þá er miklu auðveldara að aðstoða þessi sveitarfélög eða rekstraraðila að koma þessu í lag,“ segir Herdís.
{loadposition nánar fréttir}