Reglur Samtaka dagforeldra á Suðurlandi eru ætlaðar til að kynna forráðamönnum þær reglur sem eru í gildi við daggæslu barna. Það stuðlar að betri vistun og betri samskipti forráðamanna og dagforeldra. Auk þess sem þær fjalla um vistunargjald, vistunarsamning og ýmis ákvæði varðandi skyldur dagforeldra og forráðamanna.
Dagforeldri ber að fara með allar upplýsingar sem það fær um einka hagi barns og forráðamanns þess sem trúnaðarmál, svo fremur sem upplýsingarnar varða ekki tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum.
Við upphaf dagvistunnar skulu forráðamaður og dagforeldri undirrita sérstakan vistunarsamning. Í vistunar samning þurfa að koma fram upplýsingar um barnið, forráðamenn þess og dagforeldri s.s. nafn, heimili , síma og kennitölu, dvalartíma barns og hvaða máltíðir það fær hjá dagforeldri. Eins er mikilvægt að tilgreina ef að um einhver sérákvæði er að ræða í samningum forráðamanna og dagforeldris.
Áríðandi er að upplýsingastreymi sé mikið og óþvingað á milli forráðamanna og dagforeldris því það er nauðsynlegur grunnur undir góða samvinnu.
Ef forráðamaður kemur ekki með barn á umsömdum tíma í upphafi vistunnar og tilkynnir ekki forföll hefur dagforeldri heimild, að tveimur dögum liðnum, að ráðstafa vistunarplássi að nýju.
Ákvörðun um vistun barns hjá dagforeldri er ætíð á ábyrgð forráðamanna.
Vistunargjald
Vistunargjald er það gjald sem greitt er mánaðarlega fyrir dagvistun barns. Það er samansett úr matargjaldi, rekstrargjaldi og launum dagforeldris. Í launalið dagforeldra er innifalið orlof og 2 veikindadagar í mánuði.
Við upphaf vistunnar skal gjaldskrá dagforeldris kynnt. Í gjaldskrá skal eftirfarandi tilgreint varðandi grunngjaldið.
Upphæð gjalds fyrir vistun í dagvinnu, yfirvinnu og næturvinnu.
Gjaldtaka miðast við hálfa og heila klukkustund
Hugsanleg gjaldtaka í þeim tilvikum þegar forráðmaður sækir barn ekki að loknum umsömdum vistunartíma.
Orlof er reiknað á grunngjald.
Ætíð reiknast 22 virkir dagar í hverjum mánuði.
Tveir starfsdagar á ári eru innifaldir í grunngjaldi, enda eru þeir nýttir til endurmenntunnar í þágu starfsins og verða tilkynntir með góðum fyrirvara.
Hækkanir á gjaldskrá skal tilkynnt með mánaðarfyrirvara.
Mikilvægt er að koma á umsömdum tíma (keyptum tíma) bæði þegar komið er og sótt er. Sé barn ekki sótt á réttum tíma greiðist sérstakt gjald samkvæmt samningi sem kynntur hefur verið forráðamanni. Sama gildir ef komið er með barn fyrir keyptan tíma.
Gjaldið skal greiðast 1. hvers mánaðar (nema um annað semjist),eftir þrjá virka daga áskilur dagforeldri sér þann rétt að taka ekki við barni fyrr en gjaldið er greitt. Vanskilagjald reiknast samkvæmt samningi.
Í byrjun vistunnar skal greiða mánuð fyrirfram, sem ekki er endurgreiðsluhæfur. Heimilt er á aðlögunartíma að taka gjald fyrir barn eins og gæsla verður.
Í þeim tilvikum þar sem samið er um tilfallandi viðbótargæslu skal greiða yfirvinnugjald fram til kl. 17:00 en næturvinnugjald eftir kl.17:00.
Dagforeldri skal endurgreiða martargjald barns eftir 10. dag ef barn er veikt samfellt í a.m.k. 10 virka daga svo fremur sem forráðamaður hafi tilkynnt fjarvistir.
Gjald er ekki tekið á meðan að dagforeldri er í sumarleyfi, ef barn tekur leyfi á öðrum tíma en dagforeldri þarf að greiða fyrir plássið vilji forráðamenn halda því.
Dagforeldrar
Dagforeldri er heimilt að setja sérstaka reglur fyrir eigin starfsemi og skal þá kynna þær forráðamanni áður en að vistunnarsamningur er undirritaður. Þær reglur mega þó aldrei ganga þvert á reglur félagsþjónustunnar eða reglugerð félagsmálaráðuneytisins.
Dagforeldri ber ekki skylda til að bíða lengur en hálfa klukkustund framyfir umsamin gæslutíma barns á degi hverjum. Forráðamaður hefur ekki leyfi til að færa til umsaminn gæslutíma, jafnvel þótt barn hafi komið seint um morguninn
Geti dagforeldri af einhverjum ástæðum ekki unnið að daggæslunni skal það tilkynnt forráðamönnum þegar í stað. Foreldrar bera ábyrgð á barni sínu þann tíma sem að dagforeldri getur ekki sinnt starfi sínu.
Dagforeldri ber ábyrgð á barni meðan á dvöl þess stendur, og skal hlúa að andlegri og líkamlegri velferð þess í sem víðtækustum skilningi. Þetta á jafnt við um fæðuval, leiki, leikföng, hreyfingu, útiveru, tilfinninga- og félagslega líðan barnsins. Dagforeldri skal sjá til þess að forráðamaður hafi vitneskju um dagskipulag, þar með talið mataræði, svefntíma o.fl. Dagforeldri ber að fara að ákvæðum laga, reglugerða og starfsleyfisskilyrða sem um starfsemina gilda.
Dagforeldri er skylt að stuðla að öryggi barna í hvívetna, svo sem með því að hafa sjúkrakassa á heimilinu og barnalæsingu á skápum með hættulegum efnum. Nota skal beisli í barnavögnum og háum barnastólum. Börn í daggæslu skulu aldrei vera skilin eftir eftirlitslaus.
Áður en gæsla hefsts skal dagforeldri fá greinagóðar upplýsingar um barnið og ákveða aðlögunartíma og gæslutíma í samráði við forráðamann. Dagforeldri skal sýna heimili, aðstæður inni sem úti og skýra frá því hvernig það hagar starfi sínu. Skal dagforeldri gera forráðamanni grein fyrir aðstæðum á heimilinu sem geta haft áhrif á líðan barns, t.d ef gæludýr er á heimilinu.
Forráðamenn
Forráðamenn skulu í upphafi kynna sér aðstæður hjá dagforeldri og hvernig daggæslunni verði háttað. Þeir skulu upplýsa dagforeldri hverjar séu daglegar venjur barnsins. Forráðamenn eiga rétt á upplýsingum um hvernig deginum verði varið, þar á meðal um svefntíma barnsins, svo og um mataræði, leikföng og svefnaðstöðu. Aðlögun að vist hjá dagforeldri skal miðast við þarfir barnsins og skal forráðamaður dvelja hjá barni sínu einhvern tíma daglega í upphafi vistunnar. Forráðamenn skulu kynna sér fjölda barna hjá dagforeldri og tilkynna dagforeldri ef barn er með sérþarfir, svo sem vegna fötlunnar, langvinnra veikinda eða ofnæmis.
Forráðamanni ber að tilkynna um fjarvistir vegna veikinda barna eins fljótt og kostur er, eins þegar barn kemur aftur eftir veikindi þarf að láta vita kvöldið áður í síðasta lagi kl 21:00, annars er ekki gert ráð fyrir því í mat daginn eftir. Aldrei á að koma með veikt barn í gæslu, það getur smitað önnur börn í vistunn sem og dagforeldrið. Barnið telst veikt ef það getur ekki tekið eðlilegan þátt í daglegu starfi og þarf meiri ummönnun en hægt er að veita í daggæslu. Því er barnið velkomið aftur þegar að það hefur verið hitalaust í 24 klst. og er orðið nógu orkumikið til að taka þátt í daglegu starfi.
Hringja skal og láta vita ef annar en forráðamaður kemur að sækja barnið sem og ef eitthvað kemur upp á. Barnið er ekki afhent ef að ekki hefur verið tilkynnt að annar aðili sæki barnið, þó svo að það bregðist vel við aðilanum, einfaldlega af öryggisástæðum. Börn yngri en 12 ára mega ekki sækja börn til dagforeldris.
Ef barn sefur út heima að morgni skal koma með það eftir hvíldartíma hjá dagforeldri. Ekki skal panta viðtal lækna fyrir barnið í matar- eða hvíldartíma. Ef ekki verður hjá því komist, skal koma með barnið eftir hvíldartíma, svo ekki hljótist truflun af í hvíldartíma hinna barnanna.
Í samskiptum sínum við dagforeldri skulu forráðamenn virða það að um heimahús er að ræða. Heimili dagforeldris má vera læst á meðan vistunartíma stendur.Heimili dagforeldris skal hafa verið yfirgefið er keyptum tíma líkur.
Lokað er hjá dagforeldrum á aðfangadag, gamlársdag, rauðum almanaksdögum og milli jóla og nýárs.
Breytingar á vistunnarsamningi
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur vistunarsamnings er einn mánuður. Miða skal uppsögn við 1. eða 15. dag hvers mánaðar. Uppsögn skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum.
Verði breyting á umsömdum gæslutíma, skal sérstaklega um það samið og gagnkvæmur frestur á gildistöku breytinga skal vera einn mánuður.
Munum að góð samskipti eru gulli betri, góð samskipti forráðamanna og dagforeldris ýta undir vellíðan og öryggi barns í vistun.
Samþykkt á stjórnarfundi Samtaka dagforeldra á Suðurlandi. 1. júní 2008.
Breytingar samþykktar á stjórnarfundi 7. janúar 2010
Samtök dagforeldra á Suðurlandi
Reglur samtakanna
Gildir frá 7. janúar 2010
