• Að barn þarfnast náins sambands við nokkrar ákveðnar manneskjur.
  • Að barn þarfnast örvunar og jákvæðrar athygli.
  • Að barn þarfnast öryggis og skýrra skilaboða.
  • Barn sem er öruggt með sjálft sig og umhverfi sitt er óhrætt við að takast á við nýjungar. Þorir að kanna nýjar leiðir í
  • umhverfinu. Barnið veit þó því mistakist fær það huggun og hlýju og styrkingu til að prófa aftur.
  • Leikur er vinna barnsins og nám.
  • Í gegnum leikinn lærir barnið á umhverfi sitt og sjálft sig.
  • Barn sem er í góðu jafnvægi og leikur sér óþreytt, af einbeitingu og gleði, hefur möguleika á að mæta verkefnum framtíðarinnar á sama hátt.
  • Góður uppalandi þarf að hafa úthald, gefst ekki upp þó að á móti blási.
  • Góður uppalandi notar ekki hótanir í samskiptum við barnið.
  • Góður uppalandi stöðvar óæskilega hegðun hjá barni þegar hún birtist án þess að skaða sjálfsmynd barnsins.
  • Góður uppalandi notar sjálfan sig sem agatæki.
  • Góður uppalandi veit að ef hann notar aðvörun einu sinni verður hann að framfylgja henni.

Samvinna foreldra

  • Velferð barnsins er sameiginlegt átak dagforeldris og foreldra.
  • Þarfir barnsins skulu alltaf vera miðpunkturinn, óháð persónulegum skoðunum þínum á barninu eða foreldrum.
  • Gagnkvæm virðing er nauðsynleg til þess að barni finni til öryggis og vellíðunar með samskipti foreldra sinna og dagforedri.
  • Samskiptaleiðir verða að vera opnar og færar þannig að virkt upplýsingaflæði geti verið á báða bóga.