Samtök dagforeldra á Suðurlandi.

Félagslög.

1.grein

Heiti samtakanna, heimili og hlutverk.

  1. Samtökin heita Samtök dagforeldra á Suðurlandi og hafa ávallt aðsetur á Suðurlandi.
  2. Tilgangur samtakanna er að vinna að hagsmunum dagforeldra, aukinni fræðslu og aukinni réttarstöðu dagforeldra.
  3. Félagsmenn skulu hafa starfsleyfi frá félagsmálastofnun eða viðkomandi sveitarfélagi.
  4. Félagsgjöld eru ákveðin af stjórn og innheimt einu sinni á ári fyrir aðalfund. Skuldi félagsmaður félagsgjald áskilur félagið sér rétt til að senda skuldina til innheimtu.
  5. Verði stjórn félagsins þess áskynja að félagsmaður brjóti í bága við vinnureglur samtakana getur meirihluti stjórnar félagsins vísað viðkomandi dagforeldri úr samtökunum. Áður en ákvörðun um brottvísun er tekin skal viðkomandi dagforeldri jafnan eiga þess kost að tjá sig um málið.
  6. Innifalið í félagsgjaldi er slysatrygging barna hjá dagforeldrum.

2. grein

Stjórn, nefndir og starfshópar.

  1. Stjórn samtakanna skipa 5 manns.
  2. Stjórnarmenn skulu kosnir til 2 ára. Aldrei skulu víkja fleiri en tveir úr stjórn í einu.
  3. Formaður er kosinn sérstaklega.
  4. Stjórnin skiptir með sér störfum eftir aðalfund.
  5. Enginn getur átt sæti í aðalstjórn samtakanna lengur en 4 ár samfellt.
  6. Eingöngu starfandi dagforeldrar skulu vera í stjórn.
  7. Stjórnarfundir skulu vera mánaðarlega, frá septembert til maí.
  8. Stjórnarfundir skulu vera ritaðir í fundargerðarbók/tölvu.
  9. Stjórnarfundi skal boða aukalega ef tveir stjórnarmanna óska og skal hann haldinn innan viku frá því að óskin kom fram.
  10. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund.
  11. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum á stjórnarfundi, ef atkvæði eru jöfn þá ræður atkvæði formanns úrslitum.
  12. Stjórnarmenn taki ekki að sér störf í nefndum innan félagsins, heldur fái annað dagforeldri til þess.
  13. Hlutverk stjórnar er að vinna að hagsmunum dagforeldra og vera talsmaður dagforeldra við bæjaryfirvöld eða viðkomandi sveitarfélag.
  14. Stjórn skal boða til almenns fundar minnst þrisvar sinnum á ári.

3. grein

Vinnureglur stjórnar og nefnda

  1. Formaður heldur utanum félagið. Er vakandi um velferð og hagsmuni þess. Formaður boðar til stjórnarfunda minnst einu sinni í mánuði og stýrir þeim fundum.
  2. Varaformaður er til stuðnings við störf formanns og tekur við störfum formanns ef hann forfallast.
  3. Ritari sér um að rita fundargerðir stjórnar og fundargerðir almennra funda.
  4. Gjaldkeri heldur utan um fjármál samtakanna, hefur yfirumsjón með innheimtu félagsgjalda, heldur bókhald og gefur skriflega skýrslu um innkomu og útgjöld samtakana á aðalfundi og þegar þess er sérstaklega óskað af stjórn.

Æskilegar nefndir.

Ritnefnd sér um útgáfu fréttabréfs, minnst á 6 mánaða fresti með fréttum af störfum stjórnar, greinum frá dagforeldrum, yfirlit frá öðrum hópum og fleira.

Heildsölunefnd sem sér um að dagforeldrar komist í heildsölur og kannar alla hugsanlega möguleika á ódýrari innkaupum fyrir dagforeldra.

Skemmtinefnd sér um skemmtanir í samtökunum jafnt fyrir börn sem dagforeldra. Æskilegt er að tveir dagforeldrar sitji í hverri nefnd. Kosið er í þær á aðalfundi. Hóparnir skipta sjálfir með sér verkum.

Nefndirnar skulu kosnar til tveggja ára.

4. grein

Aðalfundur.

  1. Aðalfundur fer með æðsta vald samtakanna.
  2. Aðalfundur skal haldinn í mars ár hvert.
  3. Aðalfundur skal boðaður með minnst viku fyrirvara.
  4. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til boðað.
  5. Reikningsár samtakanna er janúar til janúar.
  6. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum í öllum málum.
  7. Á aðalfundi er kosinn endurskoðandi.

Dagskrá aðalfundarins skal vera

1.    Skýrsla stjórnar.
2.    Lagðir fram reikningar.
3.    Lagabreytingar.
4.    Kosning stjórnar.
5.    Kosning nefnda.
6.    Kosning endurskoðanda.
7.    Önnur mál.

5. grein

Lagabreytingar

Lögum samtakanna verður aðeins breytt á aðalfundi. Tillögur til breytinga á lögum samtakanna skal skila til stjórnar fyrir 1. febrúar ár hvert. Tillögur að breytingum laga skulu kynntar á fundarboði fyrir aðalfund samtakanna.

Samtök dagforeldra á Suðurlandi