1. Gera ráð fyrir góðum aðlögunartíma, sérstaklega ef barnið er að fara í gæslu í fyrsta sinn. Slæm aðlögun getur valdið brestum á trausti barns bæði til foreldra og dagforeldris og aukið hættu á bakslagi í vistun seinna meir.

2. Mikilvægt er að koma á umsömdum tíma (keyptum tíma), bæði þegar komið er og sótt. Sé barn ekki sótt á réttum tíma greiðist sérstakt gjald samkvæmt samningi sem kynnt hefur verið foreldrum. Sama gildir ef komið er með barn fyrir keyptan tíma. Einnig er mikilvægt að láta vita daginn áður ef barnið kemur ekki til gæslu næsta dag eða ef því seinkar.

3. Greiða á gjaldið á réttum tíma, það minnkar hættu á misskilningi, þetta er eitthvað sem þarf að greiðast hvort sem er, því ekki að gera það sem fyrst. Gjald skal greiðast fyrir 3. hvers mánaðar (nema um annað semjist), eftir þann tíma áskilur dagforeldri sér þann rétt að taka ekki við barni fyrr en gjaldið er greitt. Vanskilagjald greiðist samkvæmt samningi.

4. Koma skal með vagn og hrein föt á mánudögum og taka heim á föstudögum. Mikilvægt er að fara í gegnum töskuna yfir helgina og fylla á. Börnin stunda útiveru alla morgna og eiga því rétt á aðgangi að góðum útifötum og hlýjum sem þægilegt er að vera í og viðeigandi eru eftir veðri. Sama gildir um vagnana..foreldrum ber að koma með nægar ábreiður svo barnið sofi vel í hlýjum vagninum.

5. Hringja skal og láta vita ef einhver annar kemur að sækja barnið og eins ef eitthvað kemur uppá. Barnið er ekki afhent ef ekki hefur verið tilkynnt um að annar aðili sæki þótt barnið bregðist vel við aðilanum.einfaldlega af öryggisástæðum.

6. Aldrei á að koma með veikt barn í gæslu, það getur smitað 4 önnur börn að ógleymdum foreldrum og okkur sem pössum það og okkar fjölskyldu. Veikt barn þarf meiri athygli en hægt er að veita í daggæslu.
Barnið er velkomið aftur þegar það hefur verið hitalaust í minst 24 klst og er nógu orkumikið til að taka þátt í venjulegri rútínu. Ef farið er út með barn sem er með hita þá æsist sýkingin upp vegna þess að ofnæmiskerfið er ekki nógu sterkt til að takast á við útiloftið líka. Og ekki skánar það þegar sýklarnir frá öllum hinum börnunum bætast ofaná það. Barnið telst veikt ef það getur ekki tekið eðlilegan þátt í rútínu og þarf sérstaka eða óvenjumikla ummönnun, þegar barnið er með hita eða hagar sér óvenjulega á einhvern hátt þá telst það veikt t.d sefur mjög mikið, er mjög pirrað eða viðkvæmt eða er ekki í stakk búið til að umgangast aðra eðlilega. Ef barn getur tekið þátt í útiveru á morgnana þá getur barn sofið úti í vagni.

7.Góð samskipti eru gulli betri. Góð samskipti foreldra og dagforeldra ýta undir vellíðan og öryggis barns í vistun.

8. Láta skal vita ef aðstæður barnsins breytast á nokkurn hátt bæði vegna öryggis og möguleika á breyttri líðan og hegðun barnsins. Ung börn skynja mun meira en fullorðnir gera sér grein fyrir og breytt aðstaða eða rútína getur komið fram í öryggisleysi, uppreisn og mótþróa og er mun auðveldara að hjálpa barninu ef allir aðilar eru meðvitaðir um breytingar í lífi þess. Dagforeldri er bundið þagnarskyldu gagnvart foreldrum.

Heimili dagforeldris skal hafa verið yfirgefið er keyptum tíma líkur