Stjörnurnar nota NIP + FAB kremin
meðal annars leikkonunum Kristen Stewart, Kelly Brook og Charlize Theron og fleirum,” segir Sesselja Sveinbjörnsdóttir, þjálfari hjá fyrirtækinu Forval, um bresku húðvörulínuna NIP+FAB sem hefur farið sigurför um heiminn.
Breska húðvörulínan NIP+FAB frá Rodial er náttúruleg og án allra parabena. Varan þykir bæði vönduð og ódýr. NIP+FAB hentar öllum húðgerðum.
Breska fyrirtækið Rodial stendur að baki NIP+FAB-línunni en það var stofnað af Mariu Hatzistefanis árið 1999. Hún kynnti merkið til sögunnar tveimur árum síðar eftir að hafa gert markaðsrannsóknir sem leiddu í ljós að brýn þörf var á vandaðri og ódýrri húðvörulínu.
„Niðurstaðan varð náttúruleg grunnlína án parabena bæði fyrir andlit og líkama sem gefur frábæran árangur,” upplýsir Sesselja.
Allir geta notað NIP+FAB línuna segir hún og tekur dæmi. „Eitt kremið er “primer” fyrir andlitið. Yfirleitt er “primer” notaður yfir dagkrem og undir farða til að halda honum fullkomnum allan daginn. Sérstaða NIP+FAB “primers” er að það má nota hann einan og sér því hann gefur góðan raka og ljær húðinni fallegan og ferskan blæ. Silkimjúka áferð sem meira að segja karlmenn geta öðlast eftir rakstur.”
Annað krem í línunni hefur ekki síður vakið athygli, svokallað “Bust Fix Gel” sem Sesselja segir gætt þeim eiginleika að móta og stinna brjóstin, styrkja brjóstasvæðið upp að hálsi og viðhalda fallegri brjóstaskoru, eitthvað sem allar konur dreymir um.
Þá segir Sesselja NIP+FAB klæðskerasniðið fyrir íslenskar aðstæður. „Línan er full af andoxunarefnum og styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar. Hún veitir hins vegar ekki vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar enda þurfum við á þeim að halda á sumrin.”
NIP+FAB
– líkamslínan er mjög virk og sýnilegur árangur kemur fljótt í ljós.
Tummy Fix: sléttur og flottur magi
Bust Fix: stinnari brjóst, flottari brjóstaskora
Cellulite Fix: slétt, stinn og fallegri húð
Útsölustaðir NIP+FAB
Reykjavík: Hagkaup; Kringla, Holtagarðar, Skeifan, Spöngin. Snyrtivöruverslun Hygea Kringla.
Verslanir Lyfju. Reykjavíkur Apótek.
Kópavogur: Hagkaup Smáralind, Snyrtivöruverslun Hygea Smáralind. Lyfja Smáratorg.
Garðabær: Hagkaup Garðabæ, Lyfja Garðatorgi.
Reykjanesbær: Hagkaup Njarðvík.
Akureyri: Hagkaup Akureyri, Betri Líðan.
{loadposition nánar fréttir}