Staðgöngumæðrun rædd á Alþingi
Tillagan er umdeild; fjölmörgum siðferðisspurningum er enn ósvarað. Samkvæmt henni á að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem undirbúi frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.
Fram kom í máli utanríkisráðherra að hann styðji tillöguna eindregið. Hann segir barnleysi vera böl en sjálfur á hann tvær ættleiddar dætur. Það ferli sé hins vegar mun flóknara nú en þegar hann ættleiddi sínar dætur.
Ólína Þorvarðardóttir sem er ein flutningsmanna sagði það umhugsunarefni í landi þar sem fóstureyðingar eru leyfðar, að umræða um að gefa barn sitt skuli vera tabú.
{loadposition nánar fréttir}