gunnar hilmarsson

Selja föt sín í 500 verslunum um allan heim

Frá því í janúar hefur Andersen & Lauth tekið þátt í sölusýningum og tískuvikum í Berlín, París, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Madríd, Amsterdam og London og að sögn Gunnars er stefnan tekin á tískuvikuna í Mílanó síðar í febrúar. Hann segir fyrirtækið hafa verið í hröðum vexti undanfarna mánuði og sér fram á bjarta tíma.

„Við erum búin að vera á fullu upp á síðkastið við að sýna á hinum ýmsu tískuvikum og þetta er búið að ganga mjög vel,” segir Gunnar sem var staddur á tískuvikunni í London þegar blaðamaður náði af honum tali.

Að hans sögn varð minna um tækifæri innan tískubransans eftir að heimskreppan skall á en að nú sé líf farið að glæðast í hann að nýju.

„Við ákváðum að keyra svolítið á þetta núna þar sem kreppan er aðeins farin að hjaðna. Ég reikna með að nýja línan verði seld í um 500 verslunum um allan heim, allt frá Rússlandi til Saudí Arabíu og allt þar á milli. Merkið hefur dafnað vel og við erum auðvitað hrikalega ánægð með það,” segir hann.

Aðspurður segir Gunnar að síðustu sölusýningunni ljúki um miðjan mars og að þá muni hann hefjast handa við að hanna næstu vorlínu.

„Sýningunum lýkur um miðjan mars og þá hefjumst við handa við að teikna vorlínu fyrir árið 2012. Við þurfum helst að klára það fyrir lok marsmánaðar þannig það er aldrei frí í þessum bransa,” segir Gunnar að lokum og hlær.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

 

oli
Author: oli

Vefstjóri