Ljósmæður styðja leikskólakennara

Ljósmæður styðja leikskólakennara

Í tilkynningu frá félaginu segir að kjarabarátta leikskólasnúist um að störf þeirra verði metin í samræmi við menntun, ábyrgð og þá grunnhugmynd að hægt sé að lifa mannsæmandi lífi á launum sínum.
Þá taka ljósmæður fram að kjarabarátta leikskólakennara sé ekki síst jafnréttisbarátta enda langstærsti hluti leikskólakennara konur.
„Ljósmæðrafélag Íslands skorar því á sveitarfélögin að sýna kjark og þor og ganga strax í að leiðrétta laun leikskólakennara. Það er hagur samfélagsins alls að fólkið sem sér um fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar, sé umbunað fyrir það mikla og góða starf,” segir í tilkynningunni.

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri