Niðurgreiðslur dagmamma
|

Kópavogur Niðurgreiðslur

Niðurgreiðslur dagmammaFramlög vegna dvalar barna hjá dagforeldrum
Prenta gjaldskrá
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári framlag vegna dvalar barna hjá dagforeldri. *Ekki er greitt fyrir sumarleyfismánuði, júlí eða ágúst.

Skilyrði fyrir greiðslu framlags vegna barns hjá dagforeldri eru eftirfarandi:

Barn sé með lögheimili í Kópavogi
Barn sé slysatryggt hjá dagforeldri
Fyrir liggi dvalarsamningur milli dagforeldris, foreldra og Kópavogsbæjar
Viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi samkvæmt reglugerð um daggæslu í heimahúsum
Barn njóti ekki annarra niðurgreiðslna vegna vistunar barnsins
Greiðslur geta hafist þegar barn hefur náð tíu mánaða aldri en sex mánaða aldri ef foreldi er einstætt.

Einstæðir foreldrar, námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi og öryrkjar með metna örorku 75% eða meira greiða lægra gjald og er framlag Kópavogsbæjar því hærra í þeim tilvikum.

Námsmenn þurfa að framvísa vottorði til staðfestingar um námsárangur eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá fyrir hverja önn. Afsláttur til námsmanna gildir ekki 1. júní til 31. ágúst, nema foreldrar séu í fullu sumarnámi.

Kópavogsbær veitir 50% systkinaafslátt með öðru barni og 75% vegna þriðja barns ef um er að ræða systkini í dvöl hjá dagforeldri.

Framlög vegna dvalar barna hjá dagforeldrum miðast við neðangreindar gjaldskrár. Annarsvegar eru framlög vegna barna að 15 mánaða aldri og hins vegar framlög vegna barna 15 mánaða og eldri. Miðað er við mánuðinn sem barnið verður 15 mánaða.

Ný gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2024

Tímafjöldi Hjón og foreldrar í sambúð Einstæðir foreldrar, foreldrar í námi, öryrkjar
4 46.987 kr. 57.496 kr.
4,5 52.862 kr. 64.684 kr.
5 58.735 kr. 71.871 kr.
5,5 64.608 kr. 79.058 kr.
6 70.483 kr. 86.245 kr.
6,5 76.356 kr. 93.432 kr.
7 82.229 kr. 100.618 kr.
7,5 88.103 kr. 107.806 kr.
8 93.976 kr. 114.992 kr.
8,5 93.976 kr. 114.992 kr.
9 93.976 kr. 114.992 kr.
Tímafjöldi Hjón og foreldrar í sambúð Einstæðir foreldrar, foreldrar í námi, öryrkjar
4 57.283 kr. 70.093 kr.
4,5 64.444 kr. 78.855 kr.
5 71.562 kr. 87.617 kr.
5,5 78.767 kr. 96.379 kr.
6 85.926 kr. 105.140 kr.
6,5 93.087 kr. 113.902 kr.
7 100.247 kr. 122.664 kr.
7,5 107.408 kr. 131.430 kr.
8 114.568 kr. 140.192 kr.
8,5 114.568 kr. 140.192 kr.
9 114.568 kr. 140.192 kr.
oli
Author: oli

Vefstjóri