Konum á Austurlandi gert að fæða á Akureyri eða í Reykjavík
Óvíst er hvort að deildin muni opna fyrir mánaðarmót en þá verða vaktaskipti. Þungaðar konur á svæðinu eru ráðþrota og gagnrýna heilbrigðisyfirvöld fyrir að koma ekki til móts við sig.
Vandamálið kom upp þegar skurðlæknir sem átti að vera á vakt næstu tvær vikur forfallaðist. Þá var konunum tilkynnt að deildin yrði lokuð. Þær sem áttu að eiga á næstu vikum var bent á að leita á fæðingardeildir á Akureyri eða í Reykjavík.
Vísir ræddi í kvöld við eina af þessum konum. Hún vildi ekki koma fram undir nafni, en segir ástandið vera afar slæmt. Hún sakar heilbrigðisyfirvöld um forkastaleg vinnubrögð og segir það vera fáránlegt að fjölskyldunni sé tilkynnt um málið aðeins fjórum dögum fyrir fæðingu.
Ríkið mun greiða ferðakostnað, kjósi þær að fara á aðrar fæðingardeildir. Það sé hins vegar ekki æskilegt að fljúga þegar langt er liðið á þungunina. Húsnæðiskostnaður er hins vegar ekki greiddur. Þannig þarf hún að annað hvort að leita til vina eða ættingja til skjóta skjóli yfir sig og eiginmann sinn eða leita á hótel með tilheyrandi kostnaði sem ríkið greiðir ekki.
Hún bendir á að barnshafandi konum sé yfirleitt gert að yfirgefa fæðingardeildir innan sólarhrings eftir að barnið er komið í heiminn. Þannig mun hún annað hvort þurfa að aka langa vegalengd með barnið eða fljúga með nýfætt barn.
Þá eru ýmsar breytur sem geta flækt málin enn frekar. Verði tafir á fæðingunni neyðist hún til að vera lengur að heimann. Þetta hafi óneitanlega í för með sér tekjuskerðingu af einhverju tagi. Þá sé heldur ekki einfalt að fá bílaleigubíla og félagsbústaði á þessum tíma árs. Hún segir kostnaðinn vera mikinn og að hann sé enn erfiðari þegar hann var ófyrirséður með öllu.
Hún segir þessa þjónustu vera fyrir neðan allar hellur. Fjölskyldan þurfi nú að leggja höfuðið í bleyti og finna lausn á því hvernig best sé að hagræða fæðingunni.
{loadposition nánar fréttir}