Kláðamaur
Kláðamaur – Upplýsingar til foreldra
Helstu smitleiðir eru við nána snertingu milli manna
Helstu einkenni:
- Kláði, sérstaklega að nóttu til.
- Mjóar rauðar rákir á húðinni.
- Útbrot og afrifur á húð vegna klórs.
- Einkenni geta komið nokkrum vikum eftir fyrstu sýkingu, en eftir endurteknar sýkingar kemur kláði eftir nokkra daga. Kláðinn getur haldið áfram í nokkrar vikur eftir rétta lyfjameðferð.
Greining:
Greining fer fram hjá lækni.
Meðferð:
- Hverfur ekki af sjálfu sér og þarfnast því alltaf meðferðar.
- Lyfjameðferð í samráði við lækni og fylgja leiðbeiningum vel.
- Venjulega er ein lyfjameðferð árangursrík en þó má endurtaka meðferð eftir 7-10 daga ef þörf er á.
- Mikilvægt að bera mýkjandi krem á líkamann daginn eftir meðferð og eftir þörfum.
- Kláði getur varað í allt að 6 vikur eftir meðferð og því eru oft notuð kláðastillandi lyf samtímis.
- Mikilvægt að öll fjölskyldan fái samtímis meðferð þó einkenna sé ekki vart.
Ráðleggingar:
- Þvo föt, handklæði, sængurföt, greiður, bursta og annað sem kemst í snertingu við líkamann úr 50° heitu vatni, minnst 15 mínútur.
- Þau efni sem ekki má þvo úr svo heitu vatni ætti að setja í lokaðan poka í 2 vikur.
- Gott að klippa neglur hjá börnum með smit og ef til vill láta þau sofa með hanska.
- Daginn eftir meðferð má barn fara aftur í skólann.
- Hvað er hægt að gera til að forðast kláðamaur?
Gott að minna börn á að fá ekki lánuð föt, trefla og þess háttar hjá öðrum.
Fylgjast með einkennum á þeim svæðum sem kláðamaurinn herjar á, það er
- Milli fingra, greipar og handarbök
- Úlnliði og olnboga
- Undir höndunum
- Húðin umhverfis naflann
- Geirvörtur kvenna
- Kynfæri karla
- Innanverð læri og mitti