Ikea innkallar barnastólabelti

Ikea innkallar barnastólabelti

17389 og með framleiðsludagsetningar 0607-0911 að hafa samband við þjónustuver IKEA (http://www.ikea.is/thjonusta).

 

Beltið getur opnast við notkun, sem skapar slysahættu. IKEA erlendis hefur fengið átta tilkynningar um belti sem opnast og í þremur þessara tilfella duttu börn úr stólnum og meiddust óverulega. IKEA á Íslandi hafa ekki borist tilkynningar um slys.

Innköllunin nær aðeins yfir ANTILOP stóla frá framleiðanda númer 17389 með framleiðsludagsetningar 0607-0911. Númer framleiðanda og framleiðsludagsetning eru prentuð neðan á sætið.

Viðskiptavinir sem eiga ANTILOP barnastól eru beðnir að athuga númer framleiðanda og framleiðsludagsetningu. Ef númer framleiðandans er 17389 og framleiðsludagsetningin er 0607-0911 eru þeir vinsamlega beðnir að koma í IKEA verslunina eða hafa samband við þjónustuver í síma 520 2500 til að fá nýtt belti þeim að kostnaðarlausu.

Innköllunin nær ekki til annarra IKEA barnastóla. Í tilkynningu frá IKEA biðst verslunin velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri