Hækka um tugi þúsunda á ári
Hækkunin nemur tugum þúsunda hjá foreldrum á ársgrundvelli.
Gjaldskrár leikskólanna hækka um fimm til þrettán prósent, misjafnt eftir sveitarfélögum, að því er fram kom í fréttum RÚV í gær. Hækkunin er hlutfallslega mest í Reykjavík og á Akureyri, um tólf til þrettán prósent miðað við átta tíma vistun.
Leikskólagjöldin verða eftir sem áður lægst í Reykjavík. Fyrir átta tíma vistun munu foreldrar í Reykjavík greiða 24.500 krónur, foreldrar í Kópavogi 28.600 krónur og 28.600 í Hafnarfirði. Á Akureyri kostar átta tíma vistun 29.500, 33.200 í Fjarðabyggð og 34.600 á Ísafirði samkvæmt samantekt RÚV.
{loadposition nánar fréttir}