Fatnaður sem vex með börnum

Fatnaður sem vex með börnum

Flíkurnar sem hún hannar eru fallegar, þægilegar en umfram allt notadrjúgar.
Íris stundaði fatahönnunarnám í Kaupmannahöfn og París og hóf að hanna barnaföt haustið 2008 eftir að hafa nýlokið fæðingarorlofi með tvö börn.

 

„Mig langaði að hanna skemmtileg og litrík barnaföt sem væru jafnframt endingargóð og þægileg. Fötin geta enst í allt að tvö ár því flíkin er þannig í sniðinu að hún „vex“ með barninu. Ég legg líka mikla áherslu á að efnin séu góð og þoli mikinn þvott,“ útskýrir Íris sem hefur undanfarið fært sig í auknum mæli út í hönnunkvenfatnaðs.

„Núna sauma ég helst barnafötin eftir pöntun og er svo heppin að ég er komin með fastan kúnnahóp sem kemur aftur og aftur að versla við mig.“

Kvenfatnaðurinn sem Íris hannar undir eigin nafni er jafn notadrjúgur og þægilegur og barnaflíkurnar og segir hún henta vel bæði fyrir leik og starf. „Ætli það mætti ekki segja að hönnun mín sé nokkuð fjölskylduvæn því flíkurnar þola mikla notkun og þvott og eru hannaðar út frá þörfum mínum og barna minna. Viðskiptavinir mínir virðast vera á höttunum eftir því sama,“ segir hún glaðlega.

Þegar hún er að lokum spurð hvort hún ætli bráðum að bæta við herralínu líka svarar hún neitandi.

„Nei, ég læt kven- og barnafatnað duga í bili,“ segir hún og hlær. Kvenfatnaðurinn fæst í versluninni Stíl á Laugavegi og á vinnustofu Írisar við Þórsgötu 13 í Reykjavík. Einnig er hægt að senda henni póst á vefpóstinn iris@pjakkar.is samkvæmt visir.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri