Drykkja rýkur upp í framhaldsskóla
Hlutfallið meðal nemenda í tíunda bekk grunnskóla er einungis níu prósent. Þetta sýnir að ölvunardrykkja ungmenna eykst hratt eftir að grunnskóla lýkur, að því er segir í tilkynningu um Forvarnadaginn 2011, sem haldinn verður á morgun, 5. október.
Þá munu fara fram umræður nemenda í grunnskólum umhugmyndir þeirra og tillögur að nýbreytni í æskulýðs- og íþróttastarfi, fjölskyldulífi og öðrum þáttum sem eflt geta forvarnir. Hugmyndirnar eru teknar saman í skýrslu sem birt verður á vefsíðu dagsins, forvarnardagur.is.
Þá verður einnig efnt til samkeppni um myndband sem haldið getur ungu fólki frá áfengi sem lengst, eða jafnvel alfarið.
Sú samkeppni er opin öllum nemendum í framhaldsskólum og jafnframt nemum í 9. og 10. bekk grunnskóla. Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndböndin og nema þau samtals hálfri milljón króna. Frestur til að skila inn myndbandi rennur út 1. nóvember.

{loadposition nánar fréttir}